Ef borið er saman við síðustu ár þá eru aðeins 45 prósent sem telja það mjög gott en til samanburðar voru tæp 85 prósent afar ánægð með Skaupið 2020. Árið 2019 voru 71 prósent á því að skaupið væri gott, 2018 voru 62 prósent á þeirri skoðun en 2017 voru þeir 76 prósent. Árið 2016 voru 60 prósent þeirrar skoðunar að Skaupið hafi þá verið gott.

Eins og sjá má á súluritinu hér ofar voru fleiri þeirrar skoðunar en undanfarin ár að Skaupið hafi beinlínis verið slakt eða 31 prósent.
Könnunin var lögð fyrir það sem heitir Þjóðargátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks eða panell, sem dreginn er með tilviljunarkenndu úrtaki úr Þjóðskrá, á netinu. Svarendur eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Í skýringu segir að Svörin hafi verið vegin samkvæmt „mannfjöldatölum Hagstofunnar um kyn, aldur og búsetu, þannig að þau endurspegla þjóðina prýðilega.“ En könnunin fór fram dagana 14. til 19. janúar 2022.

Sé rýnt í könnunina um afstöðu fólks til Skaupsins nú kemur á daginn að þeir sem búa á Austurlandi voru ánægðastir með grínið eða rúm 42 prósent sem töldu það frekar gott og 14,5 prósent mjög gott. Þeim sem búa á höfuðborgarsvæðinu var síður skemmt. Þá virðist sem fólk á fertugsaldrinum hafi verið fremur spör á hlátrasköllinn því heil 21 prósent í þeim aldursflokki telja Skaupið mjög slakt.
Þá var einnig litið til flokkspólitískra skoðana og hún borin saman við afstöðu til Skaupsins. Þar kemur á daginn að 38,5 prósent stuðningsmanna Flokks fólksins töldu Skaupið frekar eða mjög slakt, Sósíalistar voru neikvæðir sem nemur 37,8 prósentum, Sjálfstæðismenn voru 36,5 ósáttir og 34,3 prósent Miðflokksfólks. Stuðningsmenn annarra flokka fengu svo sem ekki krampa í maga af hlátri en voru sýnu jákvæðari.
