Skoðanakannanir

Gjörólíkt gengi frá kosningum
Samfylkingin mælist með 31,6 prósenta fylgi í nýrri könnun Maskínu og hefur ekki mælst hærri í könnunum fyrirtækisins. Fylgið er helmingi meira en í kosningunum fyrir níu mánuðum á meðan fylgi Flokks fólksins hefur helmingast.

„Pylsa“ sækir í sig veðrið
Tæplega sextíu prósent þjóðarinnar segjast segja „pylsa“ frekar en „pulsa“ þegar talað er um þjóðarrétt okkar Íslendinga. Það er talsverð aukning síðan málið var kannað fyrir sjö árum.

Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi
Rétt rúmur fjórðungur svarenda í nýrri skoðanakönnun í Þýskalandi sagðist kjósa öfgahægriflokkinn Valkost fyrir Þýskaland, fleiri en nokkurn annan stjórnmálaflokk. Afgerandi meirihluti er óánægður með störf Friedrichs Merz kanslara.

Ástandið á Gasa: 42 prósent telja að Íslendingar ættu að beita sér meira
Nær 42 prósent þeirra sem taka afstöðu telja að íslensk stjórnvöld ættu að beita sér meira þegar kemur að ástandinu á Gasasvæðinu. Ríflega 35 prósent telja þau vera að beita sér nægilega og tæplega 23 prósent telja að þau ættu að beita sér minna. Einn af hverjum tíu tók ekki afstöðu.

Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum
Stór hluti Íslendinga hefur áhyggjur af því að stríðsátök muni aukast í heiminum á næstu dögum. Þá hafa fleiri konur en karlar áhyggjur af auknum stríðsátökum.

Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða
Níu af hverjum tíu landsmönnum telja sig búa á stað sem er góður staður fyrir samkynhneigða. Hlutfallið hefur hækkað lítillega undanfarinn áratug.

Þjóðarpúls Gallups: Kristrún og Þorgerður gætu myndað meirihluta án Flokks fólksins
Samfylkingin mælist með tæplega 35 prósenta fylgi í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallups og er stærst í öllum kjördæmum. Samkvæmt könnuninni gæti flokkurinn myndað meirihluta með Viðreisn án aðkomu Flokks fólksins. Framsóknarflokkurinn mælist rétt undir fimm prósentum.

Óánægja með stjórnarandstöðuna eykst hressilega
Sextíu prósent þjóðarinnar eru óánægð með störf stjórnarandstöðunnar, ef marka má nýja skoðanakönnun Maskínu. 48 prósent segjast ánægð með störf ríkisstjórnarinnar, sem er sjónarmun meiri ánægja en hefur mælst áður.

Ljóst að stjórnarandstaðan græddi ekki á „kjarnorkuákvæðinu“
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, segir nýjar kannanir sýna það greinilega að kjósendum líki það vel að sjötugustu og fyrstu grein þingskaparlaga, sem sumir hafa kallað „kjarnorkuákvæðið“, hafi verið beitt af stjórnarflokkunum til að ljúka umræðum um veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar.

Innan við þriðjungur andvígur olíuleit
Aðeins tæp 29 prósent þjóðarinnar eru andvíg því að hefja olíu í íslenskri lögsögu á ný. Tæplega helmingur er því fylgjandi.

Staða Sjálfstæðisflokksins versnar eftir þinglok
Samfylkingin mælist langstærsti flokkurinn í nýrri könnun Maskínu, með 31 prósent. Sjálfstæðisflokkurinn er næststærstur með átján prósent, en það vekur athygli að fylgi flokksins dalaði verulega við þinglok og hefur sjaldan mælst jafn lítið í könnunum Maskínu. Varaformaðurinn telur hækkuð veiðigjöld skila auknu fylgi til flokksins.

Meirihluti vill banna sjókvíaeldi
Mikill meirihluti kjósenda ríkisstjórnarflokkanna er mótfallinn sjókvíaeldi samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallup. Um 64 landsmanna eru neikvæð gagnvart sjókvíaeldinu.

Meirihluti landsmanna ánægður með söluna á Íslandsbanka
Rúmlega þriðjungur landsmanna telur að vel hafi verið staðið að útboði og sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka í vor. Mikill munur er á viðhorfi Íslendinga til fyrra og seinna útboðsins.

Tveir af þremur ánægðir með beitingu „kjarnorkuákvæðisins“
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Prósents eru 65 prósent landsmanna ánægðir með ákvörðun forseta Alþingis að beita svokölluðu „kjarnorkuákvæði“ þingskapalaga til að binda enda á umræðu um veiðigjaldafrumvarp atvinnuvegaráðherra.

Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu
Landsmenn eru helst ánægðir með störf Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra af ráðherrum ríkisstjórnarinnar. Fæstir eru ánægðir með störf Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla
Flestir á aldrinum 18 til 29 ára nota samfélagsmiðla frekar en hefðbundna fréttamiðla, netmiðla og sjónvarp, til að nálgast fréttir. Þrátt fyrir þetta segjast aðeins um sjö prósent þátttakenda í nýrri könnun á vegum Fjölmiðlanefndar bera mikið traust til samfélagsmiðla.

Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu
Tæp sjötíu prósent þjóðarinnar eru hlynnt veiðigjaldafrumvarpinu. Þetta kemur fram í nýrri könnun frá Prósent. Kjósendur Sjálfstæðisflokksins eru þeir einu sem eru líklegri til að vera andvígir og fleiri Miðflokksmenn eru hlynntir en andvígir.

Handviss um að Sjálfstæðisflokkurinn fái yfir þrjátíu prósent
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segist ekki hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins í könnun Maskínu. Íbúar borgarinnar hafi gleymt því að hlutirnir geti verið betri en þeir eru.

Samfylking tekur aftur fram úr Sjálfstæðisflokki
Samfylkingin mælist stærsti flokkurinn í Reykjavík í nýrri skoðanakönnun og Sjálfstæðisflokkurinn næst stærstur.

Samfylkingin í stórsókn á landsbyggðinni
Samfylkingin mælist nú með mest fylgi allra flokka í öllum kjördæmum, öllum aldursflokkum, öllum menntunarhópum og öllum tekjuhópum. Athygli vekur að flokkurinn bætir mestu fylgi við sig á landsbyggðinni, sér í lagi í Norðausturkjördæmi þar sem hann bætir við sig 5,6 prósentum.

Mesta fylgi síðan 2009
Samfylkingin er með mesta fylgi sem flokkurinn hefur mælst með síðan árið 2009 eða í sextán ár. Aðrir stjórnarflokkar tapa fylgi og stuðningur við ríkisstjórnina dalar lítillega.

Mikill minnihluti telur stjórnarandstöðuna standa sig vel
Samfylkingin og Viðreisn eru einu flokkarnir sem fleiri telja hafa staðið sig vel en illa á síðasta þingvetri í skoðanakönnun Maskínu. Mikill minnihluti svarenda telur stjórnarandstöðuflokkanna þrjá hafa staðið sig vel og innan við fimmtungur að Flokkur fólksins hafi gert það.

„Allar kannanir eru með einhverja óvissu“
Prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, segir margar skoðanakannanir ágætar en samt sem áður sé auðvelt að gera mistök við framkvæmd þeirra. Málið snúist um hversu nákvæmt svar rannsakendurnir vilji.

„Fyrir vikið er flokkurinn á hverfandi hveli“
Formaður Miðflokksins segir nýjustu könnun Maskínu sýna að Flokkur fólksins sé á hverfandi hveli. Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir niðurstöðuna skýra stuðningsyfirlýsingu við ríkisstjórnina.

Miðflokkur rýkur upp en Sjálfstæðisflokkur dalar
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist 17,3 prósent í nýjustu könnun Maskínu og lækkar þar með um 1,6 prósent. Samfylkingin bætir við sig frá síðustu könnun Maskínu og mælist nú með 28,1 prósenta fylgi.

Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi
Um sextíu prósent svarenda í skoðanakönnun segjast vilja að Alþingi taki upp reglur sem komi í veg fyrir málþóf. Sama hlutfall lítur á umræður um bókun 35 á þingi síðustu daga sem málþóf en aðeins fjórðungur telur eðlilegt að minnihlutinn á þingi geti notað málþóf til að stöðva mál.

Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman
Samkvæmt nýrri könnun um stuðning við frumvarp atvinnuvegaráðherra, um hækkun veiðigjalda, hefur dregið úr stuðningi almennings við málið milli mánaða. Stuðningurinn er eftir sem áður mikill.

„Easy come, easy go“
Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðiprófessor segir að lítið fylgi Framsóknarflokksins í borginni samkvæmt nýrri könnun Gallup komi ekki mikið á óvart miðað við sögulegt fylgi flokksins. Framsókn hafi yfirleitt verið með einn eða engan fulltrúa í borgarstjórn, en hafi unnið óvæntan kosningasigur í síðustu kosningum.

Einar horfir til hægri
Borgarstjórnarflokkur Framsóknar myndi þurrkast út ef gengið yrði til kosninga í dag samkvæmt nýrri könnun Gallup. Oddviti flokksins segist ósáttur við niðurstöðuna og telur uppi skýrt ákall um nýjan meirihluta til hægri.

Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út
Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram með mest fylgi flokka í Reykjavík. Samfylkingin er á siglingu og myndi bæta við sig tveimur borgarfulltrúum í átta, en Framsókn myndi missa alla sína fjóra.