Jón Dagur skoraði fyrir AGF í dramatískum sigri í Íslendingaslag Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 18. febrúar 2022 19:56 Jón Dagur Þorsteinsson skoraði jöfnunarmark AGF í kvöld. AGF Jón Dagur Þorsteinsson skoraði jöfnunarmark AGF er liðið vann 3-2 útisigur gegn Íslendingaliði SønderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.
Þrír Íslendingar byrjuðu á vellinum í kvöld, þeir Atli Barkarson og Kristófer Ingi Kristinsson voru í byrjunarliði SønderjyskE og Jón Dagur Þorsteinsson í liði AGF. Mikael Anderson kom inn á sem varamaður fyrir AGF þegar rúmur hálftími var til leiksloka. Það var hins vegar Peter Christiansen sem kom heimamönnum í SønderjyskE yfir strax á annarri mínútu, áður en Stefan Gartenmann tvöfaldaði forystu heimamanna eftir tæplega 15 mínútna leik. Patrick Mortensen minnkaði muninn fyrir AGF á 34. mínútu og staðan var því 2-1 þegar flautað var til hálfleiks. Peter Christiansen hélt að hann hefði komið heimamönnum aftur í tveggja marka forystu á 48. mínútu, en mark hans var hins vegar dæmt af þar sem að hann reyndist brotlegur í aðdraganda marksins. Það var svo Jón Dagur Þorsteinsson sem jafnaði metin fyrir gestina eftir tæplega klukkutíma leik, áður en Patrick Mortensen skoraði annað mark sitt og þriðja mark AGF á þriðju mínútu uppbótartíma og tryggði liðinu þar með 3-2 sigur. AGF situr nú í sjöunda sæti deildarinnar með 24 stig eftir 18 leiki, 14 stigum meira en SønderjyskE sem situr í næst neðsta sæti.
Danski boltinn Mest lesið Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Arsenal í undanúrslit eftir vító Enski boltinn Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Handbolti Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist Fótbolti Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Enski boltinn Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport Fleiri fréttir Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Sjá meira