Í þættinum Um land allt, sem frumsýndur verður á Stöð 2 á mánudagskvöld, skyggnumst við inn í líf Mjófirðinga að vetri. Til að komast þangað förum við sjóleiðina frá Norðfirði en á bryggjunni í Brekkuþorpi tekur Sigfús á móti okkur.

Mjóifjörður, sem liggur milli Seyðisfjarðar og Norðfjarðar, var sjálfstætt sveitarfélag þar til hann sameinaðist Fjarðabyggð árið 2006. Sigfús var einmitt síðasti oddviti Mjófirðinga en hann er sonur frægasta Mjófirðings fyrr og síðar, Vilhjálms Hjálmarssonar, alþingismanns og ráðherra.

Mjóifjörður hefur þá sérstöðu austfirskra byggða að þangað er ófært landleiðina yfir vetrarmánuði. Átta mánuði ársins búa íbúar við ferjusiglingar tvisvar í viku til Neskaupstaðar, sem jafnframt eru búðarferðir.

Við verðum hissa á að hitta á ferðamenn í firðinum um hávetur, mæðginin Helenu Lind Svansdóttur og sautján ára son hennar, Alex Birgisson. Þau dvelja í húsi sem afi hennar byggði og er núna ættaróðal fjölskyldunnar.
„Þetta er bara paradís á jörðu að vera hérna,“ segir Helena Lind en þau létu ekki langt ferðalag að sunnan hindra sig. Fyrst var það flug til Egilsstaða, síðan rúta til Neskaupstaðar og loks ferjan til Mjóafjarðar.

Fjöldi báta í höfninni í þessari ellefu manna byggð vekur athygli okkar. Þar segir Sævar Egilsson okkur frá bátaeign Mjófirðinga. Sævar og eiginkona hans, Erna Óladóttir, gera bæði út fiskibát og ferjuna Björgvin og reka auk þess litla fiskvinnslu í Brekkuþorpi.
Fjögur ár eru frá því síðast var kennt í grunnskóla Mjófirðinga í Sólbrekku. Dóttir þeirra Ernu og Sævars var síðasti nemandi skólans og Erna kenndi dóttur sinni.

Í Mjóafirði hittum við líka íslensk-mexíkóska fjölskyldu. Hjónin Alexandra Dögg Sigurðardóttir frá Hornafirði og Alexis Tavera frá Mexíkó réðu sig til Sævars og Ernu í sjómennsku og fiskvinnslu og fluttu tímabundið austur ásamt fjögurra ára dóttur, Lunu Nótt. Vegna hennar var sett á stofn sérstök leikskóladeild í Mjóafirði.

Við heimsækjum Dalatanga, austasta byggða ból landsins, en þar búa mæðgurnar Marsibil Erlendsdóttir og dóttirin Aðalheiður Elfríð Heiðarsdóttir. Þær reka sauðfjárbú, rækta smalahunda og halda nokkur hross, auk þess að sinna vitavörslu og veðurþjónustu.

Saga fjölskyldunnar sem vitavarða á Dalatanga er orðin býsna löng, nær aftur til ársins 1968 þegar foreldrar Marsibilar fluttu austur frá Siglunesi. Formlega er enginn lengur með starfsheitið vitavörður á Íslandi, Marsibil kallast vitagæslumaður.
Þátturinn um Mjóafjörð er á dagskrá Stöðvar 2 á mánudagskvöld klukkan 19.05. Hér má sjá kynningarstiklu þáttarins: