Beint úr iðrum hins kvenlæga veruleika Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 22. febrúar 2022 15:30 Myndlistarkonurnar Eirún Sigurðardóttur og Jóní Jónsdóttir skipa Gjörningaklúbbinn, sem hefur verið starfræktur frá árinu 1996. Anna Kristín Óskarsdóttir/Aðsend Gjörningaklúbburinn stendur fyrir sýningunni Seiglu í NORR11 á Hverfisgötu. Sýningin mun standa til fyrsta mars næstkomandi og er unnin í samvinnu við Listval.
Gjörningaklúbburinn var stofnaður árið 1996 og er skipaður myndlistarkonunum Eirúnu Sigurðardóttur og Jóní Jónsdóttur. Þær eiga að baki fjöldan allan af einka- og samsýningum á söfnum og galleríum um allan heim og má þar meðal annars nefna MoMA í New York og Kunsthalle Vienna. Nælonsokkabuxna þrykk og aðdáunarverð aðlögunarhæfni Á þessari sýningu er um tvenns konar verk að ræða. Annars vegar er það einstök nælonsokkabuxna þrykk þar sem hinn margslungni vísinda- og félagsvefur nælonsins fær að njóta sín í öllum sínum fjölbreytileika og leikgleði. View this post on Instagram A post shared by LISTVAL (@listval_) Hins vegar má svo finna veggverkið Seiglu sem býr yfir aðdáunarverðri aðlögunarhæfni og styrk þar sem fínlegir nælonsokkar mynda eina heild sem inniheldur hnefa stórt grjót í hverri tá. Verkið Seigla eftir Gjörningaklúbbinn.Anna Kristín Óskarsdóttir/Aðsend Nælonsokkabuxurnar, sem Gjörningaklúbburinn kallar gjarnan sína olíuliti, koma beint úr iðrum hins kvenlæga veruleika þar sem efniviðurinn, nælonið, býr yfir eiginleikum úthalds, þolgæðis og þrautseigju þrátt fyrir að virðast kannski í fyrstu vera viðkvæmt efni. Þessar sokkabuxur eru einmitt unnar úr olíu og hefur Gjörningaklúbburinn unnið með þennan efnivið frá því þær hófu samstarf sitt. Verkfræði ömmunnar Hugmyndir Gjörningaklúbbsins tengjast oft félagslegum málefnum með feminískum áherslum í bland við glettni og hressandi einlægni. Hann vinnur í þá miðla sem þjóna hugmyndum hans hverju sinni, svo sem gjörninga, ljósmyndir og innsetningar og nýtir sér gjarnan verkfræði ömmunnar, handverk og útsjónarsemi í bland við glæsileika og nútímatækni. Þær Eyrún og Jóní segja enga tilviljun að verkið sé rautt og minnir á rauðsokka hreyfinguna, þar sem verkið er óður til þeirra sem komu á undan í kvennabaráttunni og femínismanum. „Hver brók tekur við af annarri sem endurspeglar hvernig hver kynslóð tekur við af annarri í baráttunni. Það sem við erum að upplifa núna í #MeToo byltingunni eigum við líka að þakka þeim sem ruddu brautina.“
Menning Myndlist Tengdar fréttir Sýningin er vítamínsprauta fyrir áhorfendur Samsýningin Í öðru húsi eftir Guðlaugu Míu Eyþórsdóttur, Hönnu Dís Whitehead og Steinunni Önnudóttur opnar í Ásmundarsal á laugardaginn. Bjartir litir og léttleiki fylla sýningarrýmið sem er sannkölluð vítamínsprauta fyrir áhorfendur. 18. febrúar 2022 16:31 „Efnið er nefnilega lifandi“ Listakonan Þóra Sigurðardóttir opnar sýninguna EFNI & RÝMI klukkan 14:00 í dag í sal félagsins íslensk grafík, Hafnarhúsinu, og stendur sýningin til 6. mars næstkomandi. 12. febrúar 2022 07:31 Magnað að geta verið eitt í listinni og svo annað í lífinu Myndlistakonan Ásdís Sif Gunnarsdóttir er hvað þekktust fyrir gjörningalist og video verk en hún hefur náð miklum árangri í listheiminum á síðustu áratugum og unnið að fjöldanum öllum af verkum og sýningum. Ásdís stendur nú fyrir einkasýningunni Stefnumót við sjálfið á Nýlistasafninu og er gestur í nýjasta þætti af KÚNST sem er að finna neðar í pistlinum. 15. febrúar 2022 10:15 Mistökin sem urðu að einhverju geggjuðu Listakonan Saga Sigurðardóttir var viðmælandi í þriðja þætti vefseríunnar KÚNST. 5. febrúar 2022 11:30 Málverkin kalla fram vellíðunartilfinningu Listakonan Saga Sigurðardóttir segir listina flæða yfir allt sem hún gerir en hún er listræn í orðsins fyllstu merkingu og hefur ástríðu fyrir hinum ýmsu listmiðlum. 1. febrúar 2022 07:00 Mest lesið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið en þá tapar sambandið“ Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Lífið Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Lífið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Lífið Púsluðu sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar Lífið Fagnaði 35 árum í sólinni Lífið „Allir vonuðu að þetta yrði stelpa“ Lífið Fleiri fréttir Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira
Sýningin er vítamínsprauta fyrir áhorfendur Samsýningin Í öðru húsi eftir Guðlaugu Míu Eyþórsdóttur, Hönnu Dís Whitehead og Steinunni Önnudóttur opnar í Ásmundarsal á laugardaginn. Bjartir litir og léttleiki fylla sýningarrýmið sem er sannkölluð vítamínsprauta fyrir áhorfendur. 18. febrúar 2022 16:31
„Efnið er nefnilega lifandi“ Listakonan Þóra Sigurðardóttir opnar sýninguna EFNI & RÝMI klukkan 14:00 í dag í sal félagsins íslensk grafík, Hafnarhúsinu, og stendur sýningin til 6. mars næstkomandi. 12. febrúar 2022 07:31
Magnað að geta verið eitt í listinni og svo annað í lífinu Myndlistakonan Ásdís Sif Gunnarsdóttir er hvað þekktust fyrir gjörningalist og video verk en hún hefur náð miklum árangri í listheiminum á síðustu áratugum og unnið að fjöldanum öllum af verkum og sýningum. Ásdís stendur nú fyrir einkasýningunni Stefnumót við sjálfið á Nýlistasafninu og er gestur í nýjasta þætti af KÚNST sem er að finna neðar í pistlinum. 15. febrúar 2022 10:15
Mistökin sem urðu að einhverju geggjuðu Listakonan Saga Sigurðardóttir var viðmælandi í þriðja þætti vefseríunnar KÚNST. 5. febrúar 2022 11:30
Málverkin kalla fram vellíðunartilfinningu Listakonan Saga Sigurðardóttir segir listina flæða yfir allt sem hún gerir en hún er listræn í orðsins fyllstu merkingu og hefur ástríðu fyrir hinum ýmsu listmiðlum. 1. febrúar 2022 07:00