Framtíðarfótboltamenn heimsins eignast oft ný átrúnaðargoð þegar þeir horfa á leiki bestu liða Evrópu og drekka í sig um leið tilþrif þeirra með boltann.
Gott dæmi um hvernig spilamennska og framkoma leikmanna í ensku úrvalsdeildinni skilar sér til unga fólksins er eftirfarandi samfélagsfærslur með fólkið á Sportbible fann.
Það eru nefnilega ekki bara tilþrifin með boltann sem krakkarnir apa eftir þegar þau setjast niður fyrir framan sjónvarpið, spjaldtölvuna, símann eða tölvuskjáinn.
Fólkið á Sportbible hefur tekið eftir þessum atvikum sem eiga auðvitað ekkert heima í fótboltaheimi krakanna en eru komin þangað engu að síður.
Unga knattspyrnufólkið er þannig farið að gefa merki fyrir hornspyrnur þrátt fyrir að engar stífar æfingar í föstum leikatriðum á æfingum. Engar hlaupareglur í gangi en „skilboðin“ gefin samt.
Unga knattspyrnufólkið er líka farið að halda fyrir munninn á sér þegar það talar við liðsfélaga sína án þess að það sé enginn myndavél á staðnum.
Unga knattspyrnufólkið þakkar líka áhorfendum fyrir stuðninginn eins og það séu þúsundir að klappa fyrir þeim í stúkunni. Í raun eru bara nokkrar hræður í stúkunni.
Unga knattspyrnufólkið fagnar marki með því að benda til himins þrátt fyrir að foreldrar, afar og ömmur séu öll enn á lífi.
Þessi samantekt fær flesta auðvitað til að brosa en auðvitað er hún líka frábært dæmi um áhrifamátt ensku úrvalsdeildarinnar.