„Maður átti ekki roð í þessar konur sem fóru í sjóinn. Þær voru bara eins og í saumaklúbb, að tala saman í ísköldum sjó. Þeir karlar sem voru með þeim þeir tolldu ekkert jafn lengi og þær,“ rifjar ljósmyndarinn upp í nýjasta þættinum af RAX Augnablik.
Eins og að vera í þvottavél
Þegar kom að því að mynda brimbrettakappana mætti ljósmyndaranum ákveðin áskorun, þar sem hann hafði aldrei stigið á brimbretti á ævinni.
„Ég þurfti að fara í svona galla og læra það í hvelli. Ég held að ég hafi drukkið hálft Atlantshafið.“
RAX viðurkennir að hann hafi verið mikið á hvolfi í sjónum en hann vildi ná þessum myndum svo hann skellti sér út í með vatnshelda myndavél.
„Maður horfir á ölduna og hugsar „shit“ ég læt mig hafa það, en svo er maður eins og í þvottavél.“
Aðalatriðið hans var að sleppa aldrei myndavélinni því þá myndi hann eflaust aldrei finna hana aftur.
„Ég smellti af í allar áttir.“
Hægt er að hlusta á frásögnina og skoða myndir ferðarinnar í spilaranum hér fyrir neðan. RAX Augnablik eru örþættir sem birtast á Lífinu á Vísi og á Stöð 2+ efnisveitunni alla sunnudaga.
Í þáttunum RAX AUGNABLIK segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+.
Hægt er að sjá alla þættina HÉR á Vísi.