Ítalíumeistarar Inter Milan náðu ekki að hrista af sér vonbrigði vikunnar í Meistaradeildinni þegar liðið heimsótti Torino í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.
Inter vann góðan sigur á Anfield í miðri viku en það dugði þó ekki til að komast áfram þar sem Liverpool hafði unnið fyrri leik liðanna 0-2.
Liverpool leikurinn virtist enn sitja í Inter liðinu í kvöld því strax á tólftu mínútu náðu heimamenn forystunni með marki brasilíska varnarmannsins Bremer.
Torino tókst að standast allar sóknarlotur Inter manna í leiknum allt þar til á síðustu mínútu uppbótartíma þegar varamaðurinn Alexis Sanchez skoraði eftir stórkostlega stoðsendingu Edin Dzeko. Lokatölur 1-1.
Inter situr í 3.sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir toppliði AC Milan en Inter á þó einn leik til góða.