Um 1.500 manns búa í Neskaupstað. Gangan eða skokkið telur um tólf kílómetra á dag hjá bréfberunum Laufeyju Sigurðardóttur og Heiðrúnu Þorsteinsdóttur.
„Lýðheilsa er mikilvægur þáttur hjá okkur. Við hugsum allar vel um heilsuna, bæði hvað varðar hreyfingu og mataræði. Mataræðið hefur áhrif á orkustigið og margir upplifa orkuleysi eftir að tæta í sig sætabrauð eða súkkulaði í vinnunni. Þess vegna veljum við poppkorn og harðfisk fram yfir kökur, kex eða súkkulaði á kaffistofunni. Nýlega höfum við svo tekið upp á því að fá okkur frekar te en kaffi,” segir Hafdís Þóra Ragnarsdóttir, afgreiðlustjóri Póstsins í Neskaupstað.

Hafdís segir að bréfberarnir Laufey og Heiðrún líti á starf sitt sem hluta af daglegri hreyfingarútínu.
„Þeim finnst alltaf gaman að koma í vinnuna og þær hlakka til að mæta og taka sinn göngutúr eða skokk með póstinn. Með þessum lífstíl og hugarfari eru fáir veikindadagar á pósthúsinu hér í bænum. Starfsumhverfið er mjög hvetjandi og hérna eru allir jákvæðir og glaðir alla daga sem smitar út frá sér til viðskiptavina," segir Hafdís.
