Toyota á toppnum í mars og þriðjungs aukning á milli mánaða Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 4. apríl 2022 07:00 Model Y, mest nýskráða undirtegundin í mars, á bryggju. Vilhelm Gunnarsson Toyota nýskráði 296 bifreiðar í mars nýliðum sem er meira en nokkuð annað merki skráði. Tesla var næst algengasta skráða merkið í mars með 231 bíl. Kia var svo í þriðja sæti með 140 bíla skráða. Alls voru 1856 nýskráð ný ökutæki í mars sem er aukning á milli mánaða um þriðjung eða 33,5%. Upplýsingar um nýskráningar eru fengnar af vef Samgöngustofu.
Mest nýskráða undirtegundin Tesla Model Y var mest nýskráða undirtegundin í mars, af 231 Tesla-bifreið skráðri í mánuðinum þá voru 175 Model Y. Mitsubishi Eclipse Cross var svon næst mest nýskráða einstaka undirtegundin með 95 bíls skráða. Það voru allar Mitsubishi bifreiðar sem nýskráðar voru i mars. Nissan Leaf var þriðja mest nýskráða undirtegundin með 67 eintök nýskráð. Fyrsta Toyota-bifreiðin á listanum yfir mest nýskráðu undirtegundirnar er í fjórða sæti, Rav4 með 62 nýskráða bíla, 48 Land Cruiser-bifrieðar voru nýskráðir í mars. Skjáskot af vef Samgöngustofu. Orkugjafi Af þeim 1856 bifreiðum sem nýskráðar voru í mars voru 757 hreinir rafbílar eða um 40%. Til viðbótar voru 325 tengiltvinnbílar og 192 tvinnbílar. Einungis 179 bílanna voru hreinir bensín bílar og 403 þeirra voru hreinir dísel bílar. Bílar sem ganga fyrir vistvænni kostum en eingöngu jarðefnaeldsneyti er því rúmlega tveir þriðjungar af nýskráðum bílum. Vistvænni kostir virðast njóta sífellt aukinna vinsælda. Í sama mánuði í fyrra voru 354 rafbílar nýskráðir af þeim 1589 sem nýskráðir voru, eða rétt rúm 22%. Vistvænni bílar voru þá um helmingur nýskráðra bíla eða 48,8%.
Vistvænir bílar Mest lesið Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Innlent Haft höggbor beint fyrir utan í hálft ár og kominn með nóg Innlent Stímir óhrædd í gin ísraelska sjóhersins Innlent Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Innlent Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Erlent Kom ráðherra á óvart að viðræðum hefði verið slitið Innlent Hafði hvorki þekkingu né umboð til að tjá sig um fjármálin Innlent Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Erlent Thunberg meðal 500 handtekinna aðgerðasinna Erlent Demókrötum kennt um og uppsögnum hótað Erlent