Nýtt sportvörumerki hristir upp í markaðnum 4F íþróttavörur 22. apríl 2022 08:51 4F er pólsk fatakeðja sem starfrækir 350 verslanir víða um Evrópu. 4F verslun var opnuð í byrjun apríl í Smáralind. „Viðtökurnar hafa verið frábærar. Hér á landi er mikill áhugi á útivist og hreyfingu og 4F býður verð á útivistar- og íþróttafatnaði sem hefur ekki áður sést á íslenskum markaði.
Hjá okkur getur fólk sem dæmi keypt gönguskó, göngubuxur, millilag, primaloftjakka og skel fyrir um 30% til 50% af því verði sem almennt þekkist og gæðin standast fyllilega samanburð,“ segir Hafsteinn Valur Guðbjartsson en hann, ásamt Bjarna Jónssyni, á og rekur sportvöruverslunina 4F í Smáralind sem opnuð var í byrjun apríl. Verslunin fyllir 200 fermetra í Smáralind. 4F er pólsk fatakeðja sem starfrækir 350 verslanir víða um Evrópu. Hafsteinn kynntist 4F gegnum pólskt samstarfsfólk sitt en fyrir rekur Hafsteinn sjö verslanir sem þjónusta erlenda ferðamenn. Lengi hafði staðið til að bæta verslun fyrir innlendan markaðshóp í flóruna og segist Hafsteinn hafa kolfallið fyrir 4F. Vörulínan inniheldur alhliða útivistar- og íþróttafatnað. „Við höfðum lengi leitað að heppilegu merki til að flytja inn. Samstarfsfólk okkar kemur margt frá Póllandi og notar þetta merki mikið. Þau sýndu okkur fötin og við höfðum samband út. 4F bauð okkur í heimsókn og þá var ekki aftur snúið. Búðirnar þeirra eru glæsilegar og vörulínan mjög fjölbreytt,“ segir Hafsteinn en 4F framleiða skó og fatnað fyrir alla almenna útivist, skíðaíþróttir, hlaup og göngur. Þá framleiðir 4F einnig vandaðan barnafatnað. 4F framleiðir einnig fatnað á börn og unglinga. „Gæðin eru af bestu gerð og öll tæknielement til staðar þegar kemur að vatns- og vindheldum fatnaði og primaloft fatnaði. Þá bætast nýjungar við fatalínuna hjá þeim í hverjum mánuði. Við fáum okkar aðra sendingu í næstu viku og erum mjög spennt. Við erum rétt að byrja og það verður gaman að sjá hvar eftirspurnin liggur,“ segir Hafsteinn. En hver er galdurinn á bak við lágt verð? „4F byggir á ákveðnu viðskiptamódeli sem við þekkjum til að mynda frá merkjum eins og Lindex. Þau framleiða sína eigin vörulínu og sleppa öllum milliliðum við framleiðsluna. Þau leggja áherslu á samstarf við íþróttafólk í heimalandinu í stað þess að kaupa dýrar alþjóðlegar íþróttastjörnur. Þess má geta að 4F er samstarfsaðili pólsku ólympíunefndarinnar og hefur klætt átta ólympíulið ólíkra þjóða frá árinu 2008. Markahrókurinn Robert Levandoski er ambassador merkisins, og hannar hann og kona hans Anna sem er verðlaunahafi ólympíuleikana í Karate, sínar eigin vörulínu fyrir 4F.“ Upplifun að ganga inn í verslunina „Ég segi að þetta sé langflottasta fataverslun landsins og stend við það. Upplifunin er einstök þegar fólk gengur hingað inn. Við erum til dæmis með sjö risaskjái í versluninni sem sumir eru fjögurra metra háir. Öll framsetning á fatnaði er áberandi glæsileg,“ segir Hafsteinn. „Ég vil hvetja fólk til að kíkja í heimsókn til okkar og skoða fatnaðinn.“
Tíska og hönnun Heilsa Mest lesið Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Viðskipti innlent Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Viðskipti innlent Matarinnkaupum frestað fram yfir mánaðamót Neytendur Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Viðskipti innlent Afreksíþróttamenn sendast með tvö þúsund matarskammta á dag Viðskipti innlent Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Viðskipti innlent Segist engin deili kunna á rafmyntajöfri sem hann náðaði Viðskipti erlent Amaroq staðfestir merkilegan fund sjaldgæfra jarðmálma Viðskipti innlent Eldmóðurinn slokknar ekki þótt kertin séu orðin sjötíu Framúrskarandi fyrirtæki Sækja á fjórða milljarð króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kerfi sem virka eins og lungu landeldisstöðva Bauhaus styrkir góð málefni fyrir jólin „Ég fæ hroll þegar fólk segist hafa notað sama lykilorðið í 20 ár“ Forvarnarverðlaun VÍS: „Öryggi er ekki samkeppnismál“ ÍMARk rýnir í markaðsheim framtíðarinnar Tengiltvinnari fyrir taugatrekkta Peltor og Dynjandi saman í 60 ár Framlína heilbrigðisþjónustunnar kallar eftir liðsauka Persónuleg reynsla varð að atvinnurekstri Rafmagnað fyrsta stefnumót við Nissan Ariya Í stuði í 130 ár: Virkjanir sem leystu af dísilvélar og knúðu síldarbæ KLAK health býður sprotafyrirtæki í heilsutækni velkomin Hreinsun þakrenna fyrirbyggir skemmdir Sjá meira