City fer með forystu til Spánar eftir sjö marka leik Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 26. apríl 2022 21:02 Bernardo Silva skoraði fjóðra mark City í kvöld. James Williamson - AMA/Getty Images Englandsmeistarar Manchester City fara með eins marks forskot inn í síðari leik liðsins gegn Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu eftir 4-3 sigur í hörkuleik kvöld. Heimamenn í City byrjuðu af miklum krafti og leikurinn var rétt að verða tveggja mínútna gamall þegar Kvein De Bruyne kom liðinu yfir eftir stoðsendingu frá Riyad Mahrez. Gestirnir frá Madríd áttu í stökustu vandræðum í upphafi leiks og Gabriel Jesus bætti öðru marki heimamanna við níu mínútum eftir það fyrsta og staðan því orðin 2-0 eftir rétt rúmlega tíu mínútna leik. Madrídingar tóku þó við sér og komust betur og betur inn í leikinn eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn. Þeir fengu nokkur álitleg færi að gjöf frá heimamönnum, en tókst ekki að nýta þau. Það var ekki fyrr en á 33. mínútu sem Karim Benzema minnkaði muninn fyrir gestina með góðu marki eftir fyrirgjöf frá Ferland Mendy. Ekki urðu mörkin fleiri í fyrri hálfleik og staðan því 2-1, City í vil, þegar gengið var til búningsherbergja. Phil Foden kom heimamönnum í tveggja marka forystu á nýjan leik með marki á 53. mínútu áður en Vinicius Junior minnkaði muninn aftur tveimur mínútum síðar. Það var svo Bernando Silva sem skoraði fjórða mark Englandsmeistaranna þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka með góðu skoti á nærstöngina. Þessi tveggja marka forysta City lifði þó ekki lengi frekar en áður í leiknum því á 80. mínútu handlék Aymeric Laporte knöttinn innan eigin vítateigs og vítaspyrna dæmd. Karim Benzema fór á punktinn og ískaldur vippaði hann boltanum á mitt markið og horfði á Ederson skutla sér út að stöng. Þetta reyndist seinasta mark leiksins og niðurstaðan varð því 4-3 sigur Manchester City. Englandsmeistararnir eru því með eins marks forystu fyrir síðari leikinn sem fram fer í Madríd á miðvikudaginn eftir rúma viku. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla