María hafði betur í Íslendingaslag ensku úrvalsdeildarinnar Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 1. maí 2022 12:57 María Þórsidóttir með boltann í leik dagsins. Charlotte Tattersall/Getty Images María Þórisdóttir og stöllur hennar í Manchester United unnu sannfærandi 3-0 sigur er liðið tók á móti Dagnýju Brynjarsdóttur og liðsfélögum hennar í West Ham í ensku úrvalsdeild kvenna í fótbolta í dag.
María og Dagný léku báðar allan leikinn í dag, en það var Martha Thomas sem kom heimakonum í Manchester United í forystu eftir rétt rúmlega tíu mínútna leik. Heimakonur fóru svo með 2-0 forystu inn í hálfleikinn eftir að Grace Fisk varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net á 20. mínútu. Það var svo Leah Galton sem gulltryggði sigur United með marki snemma í síðari hálfleik. Lokatölur urðu því 3-0, United í vil, en sigurinn lyfti liðinu upp í þriðja sæti deildarinnar. Three big points from our last home game of the season! 👏👏👏#MUWomen | #FAWSL pic.twitter.com/EdRPf0Kzyq— Manchester United Women (@ManUtdWomen) May 1, 2022 Manchester United er með 42 stig þegar liðið á aðeins einn leik eftir og er í harðri baráttu við nágranna sína í Manchester City um þriðja sætið sem gefur þátttökurétt í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Dagný og stöllur hennar sitja hins vegar í sjötta sæti deildarinnar með 27 stig og sigla lygnan sjó um miðja deild.
Enski boltinn Fótbolti Mest lesið Vann hálft maraþon, fæddi barn og varð svo meistari í heilu maraþoni Sport Elísa langfyrst fyrir Magnús Mána: „Þessi dagur er fyrir hann“ Sport Reykjavíkurmaraþonið í beinni á Vísi Sport Uppgjörið: Valur - Vestri 0-1 | Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Magnaður sigur Dags í Vestratreyju: „Núna er bara stefnan sett á ÓL“ Sport Svekktur Íslandsmeistari: „Þetta var rosalega erfitt hlaup“ Sport Patrick sleit hásin og verður frá út tímabilið Íslenski boltinn Magnús Eyjólfsson er látinn Sport „Lið úr bæ þar sem eru fleiri fiskar og kindur en fólk“ Íslenski boltinn Fluga hjálpaði kúlunni ofan í holuna Golf Fleiri fréttir Guðlaugur Victor til Danmerkur á ný Yfirgaf æfingaferð Marseille í áfalli Keflvíkingar létu mörkunum rigna gegn Völsungi Sjálfsmark í blálokin bjargaði Börsungum Þórsarar á toppinn Orðinn langþreyttur á glímunni við Útlendingastofnun Eze í treyju númer tíu og byrjar á stórleik við Liverpool Þrír leikir í enska: Draumabyrjun Outtara en gömlu félagarnir unnu líka Öruggur sigur Arsenal á nýliðunum Þróttur fær tvo tíma á toppnum og Fylkir úr fallsæti Ronaldo þarf enn að bíða eftir titli þrátt fyrir tímamótamark Hjörvar fékk treyju með kveðju frá De Gea í beinni Skelfileg mistök City og fullkomin byrjun Spurs Valgeir fékk að spila og lagði strax upp í fyrsta sigrinum Sjáðu „fólkið frá þessum stað“ fagna í alvöru gæsahúðarmyndbandi Aurier í bann vegna lifrarbólgu Myndaveisla frá sögulegri stund Vestra Sjáðu markaveisluna hjá Chelsea í Austur-Lundúnum „Greenwood fékk annað tækifæri en ekki sonur minn“ Potter niðurlútur: „Ekki margt jákvætt“ „Það er æfing á morgun“ „Flottasta mark sem ég hef skorað á ferlinum“ Patrick sleit hásin og verður frá út tímabilið „Lið úr bæ þar sem eru fleiri fiskar og kindur en fólk“ Uppgjörið: Valur - Vestri 0-1 | Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn Chelsea svaraði með fimm mörkum og pressan á Potter eykst Uppgjörið: Breiðablik - Tindastóll 5-0 | Blikar fóru illa með laskaða Stóla Kane með þrennu er Bayern valtaði yfir Leipzig Framlengir við City: „Ég elska Manchester“ Palmer meiddist í upphitun og ekki með gegn West Ham Sjá meira