Jón Þór: Fórum að gera hlutina hver í sínu horni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. maí 2022 22:05 Jón Þór Hauksson gefur skipanir. vísir/hulda margrét Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, sagði að þótt það hafi verið svekkjandi að lenda undir blálok fyrri hálfleik hafi annað mark Vals sett hans menn út af laginu. ÍA tapaði 4-0 fyrir Val á Hlíðarenda í kvöld. „
Mér fannst annað markið gera það. En það sem við tökum út úr þessum leik er virkilega öflug frammistaða í fyrri hálfleik. Við hefðum getað verið komnir yfir áður en þeir skoruðu,“ sagði Jón Þór í samtali við Vísi eftir leik. „Auðvitað er þungt og erfitt að fara inn í hálfleikinn með mark í andlitinu. Við annað markið riðlaðist svo allur okkar leikur og við fórum að gera hlutina hver í sínu horni og við það splundraðist liðið. Gott lið eins og Valur nýtir sér það og þeir gerðu það virkilega vel.“ En hvað hefði Jón Þór viljað sjá sitt lið gera betur í seinni hálfleik? „Ég held við hefðum getað brugðist betur við. Auðvitað var áfall að fá á sig mark í lok fyrri hálfleiks. Í hálfleik eru menn svo að járna sig upp og eru virkilega staðráðnir í að koma til baka en fá svo annað markið á sig í staðinn. Ég hefði viljað sjá okkur gera betur í þeirri stöðu, þétta liðið í staðinn fyrir að gera hlutina í sitt hvoru lagi út um allan völl,“ svaraði Jón Þór. Þrátt fyrir að ÍA hafi tapað tveimur leikjum í röð með fjögurra marka mun er engan bilbug á Jóni Þór að finna. „Blikar voru frábærir í leiknum á laugardaginn og stundum þarftu bara að bera virðingu fyrir því. Við erum að spila við tvö frábær lið og Valsmenn nýttu sér það frábærlega þegar leikur okkar riðlaðist. Við látum þetta ekki slá okkur út af laginu,“ sagði Jón Þór að lokum.
Besta deild karla ÍA Mest lesið Moyes kastaði kveðju á vini sína á Íslandi eftir viðtal við Hjörvar Enski boltinn Theodór Elmar hættur hjá KR Íslenski boltinn Spænski risinn grátt leikinn og Estevao vann uppgjör ungstirnanna Fótbolti Vinur Schumacher segir að almenningur muni aldrei sjá hann aftur Formúla 1 „Salah talar bara þegar hann vantar nýjan samning“ Enski boltinn „Sem fagmaður frábær en ennþá betri vinur“ Fótbolti Gríðarleg fjölgun kylfinga: „Aðstaðan sprungin í höfuðborginni“ Golf Gueye biðst afsökunar: „Ekkert réttlætir svona hegðun“ Enski boltinn Yfir sig ánægður með Rashford: „Hann er síbrosandi“ Fótbolti Sjáðu æðiskast Gueye sem fékk rautt fyrir að slá liðsfélaga Enski boltinn Fleiri fréttir Theodór Elmar hættur hjá KR Hrannar Bogi inn eftir brotthvarf Caulkers Segir ónefndan aðila hafa unnið gegn sér hjá Breiðabliki Alex Freyr frá Fram í Njarðvík Víkingar fá ungan og spennandi kantmann Nýliðarnir fá níutíu leikja mann Jónatan og formaður hissa á tali um KR-löngun Víkingar vilja finna nýtt nafn á Safamýrarsvæðið og biðja um hjálp „Ég væri miklu frekar til í að skipta deildinni í efri og neðri“ Fara loksins inn í íbúðina sem þau keyptu fyrir tveimur árum Árni Snær áfram milli stanganna hjá Stjörnunni Frá Klaksvík á Krókinn Samningi Caulkers við Stjörnuna rift „Að fara frá heimahögunum og í borg óttans“ Rosenörn yfirgefur FH Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir Sjá meira