Framlög Úkraínu, Noregs og Hollands sitja öll á lagalistanum Viral 50 - Global á streymisveitunni Spotify en sá lagalisti nær utan um þau lög sem eru að slá í gegn um allan heim um þessar mundir.
Söngkonan Stien den Hollander gengur undir listamannsnafninu S10 og keppir fyrir hönd Hollands með lagið Die Diepte. Lagið situr í 47. sæti Viral 50 - Global á Spotify.

Gulu úlfarnir í Subwolfer eru framlag Noregs í ár og lagið þeirra Give That Wolf A Banana hefur náð til ótal margra en lagið situr í 33. sæti á sama lista.

Úkraína er svo í 32. sæti á Viral 50 - Global lista Spotify með lagið Stefania, sem er framlag þeirra í ár. Laginu er spáð sigri af veðbönkunum og þykir mörgum líklegt að Kalush Orchestra beri sigur úr býtum.

Hér má nálgast lagalistann í heild sinni: