Stjórn KSÍ: Viðkomandi stígur til hliðar á meðan meðferð máls stendur yfir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. maí 2022 11:27 Stuðningsmenn íslenska landsliðsins í knattspyrnu á leik á Laugardalsvelli. Vísir/Vilhelm Stjórn Knattspyrnusambands Íslands hefur samþykkt viðbragðsáætlun KSÍ en málið var tekið fyrir á fundi stjórnar KSÍ 19. maí síðastliðinn og endanlega samþykkt á framhaldsfundi stjórnar 23. maí. KSÍ segir frá þessu á heimasíðu sinni í dag.
Þar kemur fram að ef mál einhvers hjá KSÍ eru til meðferðar hjá rannsóknar- eða ákæruvaldi og/eða samskiptaráðgjafa, vegna meintra alvarlegra brota, að þá skuli viðkomandi stíga til hliðar í hlutverki sínu hjá KSÍ á meðan meðferð máls stendur yfir. Málið var tekið fyrir undir dagskrárliðnum "Fræðsla, verkferlar og vinnubrögð" þar sem rætt var um um skýrslu starfshóps KSÍ frá hausti 2021 og viðbrögð KSÍ. Einnig var rætt um skýrslu starfshóps ÍSÍ um verkferla, vinnubrögð og viðmið í íþróttahreyfingunni (apríl 2022). Samþykkt stjórnar um viðbragðsáætlun KSÍ tekur strax gildi. https://t.co/bl4yO7wRHa— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) May 25, 2022 Formaður KSÍ, Vanda Sigurgeirsdóttir, kynnti síðan tillögu um viðbragðsáætlun KSÍ. Málið var rætt en frekari umræðu var frestað til framhaldsfundar stjórnar 23. maí. Á framhaldsfundinum var neðangreint samþykkt: Stjórn KSÍ samþykkti að haft sé að leiðarljósi það meginviðmið, þegar mál einstaklinga eru til meðferðar hjá rannsóknar- eða ákæruvaldi og/eða samskiptaráðgjafa, vegna meintra alvarlegra brota, að þá skuli viðkomandi stíga til hliðar í hlutverki sínu hjá KSÍ á meðan meðferð máls stendur yfir. Það gildir jafnt um dómara, þjálfara, leikmenn, forystumenn, starfsmenn og aðra þá sem eru innan KSÍ. Þessi samþykkt tekur strax gildi. Stjórn KSÍ mun ræða önnur atriði í drögunum áfram og mun jafnframt óska eftir aðkomu laga- og leikreglnanefndar. Stjórn KSÍ leggur líka mikla áherslu á að vandað sé til verka og að málið sé áfram unnið af ábyrgð, fagmennsku og yfirvegun.
KSÍ Landsliðsmenn sakaðir um kynferðisofbeldi Mest lesið Kærastan tók eftir því að eitthvað var að Handbolti Vara við því að „töfradrykkur“ Haaland geti valið matareitrun Enski boltinn Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Golf Sjáðu brot af því besta úr enska boltanum í dag Fótbolti Eins og á gamlárskvöldi á Íslandi inni á leikvanginum Fótbolti Ótrúleg varnartölfræði Arsenal í október Fótbolti Er Tóti Túrbó ofmetinn? Körfubolti Dagskráin í dag: Enski boltinn og margt fleira Sport „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Körfubolti Liverpool loks á sigurbraut á ný Enski boltinn Fleiri fréttir Skoraði fyrsta markið sama dag og hann flutti í þriðja sinn á þremur mánuðum Vara við því að „töfradrykkur“ Haaland geti valið matareitrun Eins og á gamlárskvöldi á Íslandi inni á leikvanginum Ótrúleg varnartölfræði Arsenal í október Sjáðu brot af því besta úr enska boltanum í dag Juventus landaði sigri í fyrsta leik Spalletti Liverpool loks á sigurbraut á ný Valencia engin fyrirstaða fyrir Real Madrid Lánleysi Úlfanna algjört og Palace aftur á sigurbraut Pedro afgreiddi Tottenham Arsenal með sjö stiga forystu á toppnum Emelía innsiglaði sigurinn og liðið á toppnum Andri Lucas í beinni í Doc Zone: „Við setjum hann í skeytin“ Glódís Perla og félagar létu ekki áfall í byrjun stoppa sig Amad bjargaði stigi fyrir United Andri Lucas var kóngurinn á King Power í dag Diljá norskur meistari með Brann Alexandra skoraði en hræðilegur fyrri hálfleikur eyðilagði allt Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka Liverpool féll síðast þegar liðið tapaði fimm í röð Fyrrum þjálfari ársins notaði gervigreindina til að hjálpa sér „Ég er ekki Schmeichel í dulargervi“ FH-ingar kveðja Kjartan Henry Arne Slot: „Þetta er síðasta spurningin sem ég átti von á“ 149 tyrkneskir dómarar í bann vegna veðmála Segir sönginn um Jota á tuttugustu mínútu hafa áhrif á leik Liverpool Harma rasíska og transfóbíska grein liðsfélaga Sveindísar Kóngarnir í Færeyjum: Töpuðu ekki leik allt tímabilið Haaland fór sem Jókerinn að versla bleyjur Fullkomin þrenna kom Lampard úr sjöunda himni Sjá meira