Stálu vörum úr matvöruverslun í miðbænum Atli Ísleifsson skrifar 30. maí 2022 07:49 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmis horn að líta í gærkvöldi og í nótt. Vísir/Vilhelm Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af tveimur konum sem voru að stela vörum úr matvöruverslun í miðborg Reykjavíkur.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu en ekki er tekið fram hvenær dags tilkynning barst, en í tilkynningunni er sagt frá verkefnum lögreglunnar í gærkvöldi og í nótt. Þar segir að konurnar hafi verið færðar á lögreglustöð þar sem skýrsla var tekin af þeim og þeim í framhaldinu sleppt. Í tilkynningunni segir einnig að maður í annarlegu ástandi hafi verið handtekinn í hverfi 110 í Reykjavík þar sem hann hafi neitað að yfirgefa húsnæði þar sem hann var ekki velkominn. Maðurinn hafði einnig í hótunum við lögreglu og var hann vistaður í fangaklefa. Þá var manni í mjög annarlegu ástandi komið til aðstoðar í hverfi 110 í Reykjavík þar sem hann lá ósjálfbjarga út á víðavangi. Ók lögregla honum til síns heima þar sem tekið var á móti honum. Einnig segir frá því að lögregla hafi stöðvað ökumann í hverfi 108 í Reykjavík þar sem bíllinn hafi verið á nagladekkjum. Var málið afgreitt á vettvangi. Þá voru þrír ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur, en sá sem hraðast ók var á 125 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund. Ennfremur stöðvaði lögregla nokkra ökumenn vegna aksturs undir áhrifum áfengis eða fíkniefna í gærkvöldi og í nótt.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Innlent „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Erlent Svona mun Suðurlandsbraut líta út Innlent Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Innlent „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Innlent Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Erlent Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Innlent Leigubílar verði á lituðum númeraplötum Innlent Launin lækkuð um 97 prósent en ekki afnumin Innlent Óttast vaxtahækkanir vegna sleggjunnar sem stjórnvöld „fengu í trýnið“ Innlent Fleiri fréttir Mikil andstaða við nýtt 160 herbergja hótel á Laugarvatni Á fjórða hundrað vilja á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Svona mun Suðurlandsbraut líta út Kannast ekki við tilraunir til að stofna nýtt Vélfag Ljósið flytur í Grafarvog Launin lækkuð um 97 prósent en ekki afnumin „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Pallborðið: Aðstoðarmenn, bæjarstjóri og viðskiptafræðingur Viðreisnarfélögum fjölgað um helming fyrir prófkjör Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Guðjón endurkjörinn og Simon líka Mannabreytingar samráðsfunda eins og tiltekt á jólakortalista Óttast vaxtahækkanir vegna sleggjunnar sem stjórnvöld „fengu í trýnið“ Verðbólgan eykst en loðnan gleður Bein útsending: Opinn fundur um áfallaþol Íslands Sakar mótframbjóðanda um trúnaðarbrest og kallar eftir prófkjöri Leigubílar verði á lituðum númeraplötum Alltaf til í slaginn en vonar að samningar haldi Vísar ásökunum um óeðlileg afskipti í kosningabaráttu á bug Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Rannsaka innbrot á veitingastað og þjófnað í skartgripaverslun Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Óttast að útlendingafrumvarpið þjóni ekki tilgangi sínum Sigurvíma, hópuppsögn og auðar brekkur Sjá meira