Veiði

Mjög róleg bleikjuveiði í Þingvallavatni

Karl Lúðvíksson skrifar
60 sm sílableikja úr Þingvallavatni en veiðin í vatninu í sumar hefur verið mjög léleg
60 sm sílableikja úr Þingvallavatni en veiðin í vatninu í sumar hefur verið mjög léleg Mynd: KL

Þingvallavatn hefur verið mikið sótt af veiðimönnum sem una sér vel við vatnið og kasta flugu fyrir vænar bleikjur.

Vatnið er algjör perla að veiða en það virðist engu að síður vera eitthvað í gangi því veiðin hefur verið mjög dræm í sumar. Það komu nokkrir ágætir dagar í maí en flestir sem Veiðivísir hefur fengið upplýsingar frá, og þetta eru veiðimenn sem hafa áratuga reynslu við vatnið, segja að það sjáist varla bleikja í vatninu. Júní sem venjulega er einn besti tíminn hafi verið afleitur og það er ekki bara veður sem þar ræður för því á þessum fáu góðu dögum sem hafa verið við vatnið hefur varla sést vök.

Björn Guðmundsson hefur veitt í vatninu í 30 ár og segir stöðuna greinilega ekki góða. "Í maí 2022 fór ég tvær ferðir í maí og veiddi enga bleikju og sá ekki fisk. Í júní er ég búinn að fara þrjár ferðir og hef fengið 4 bleikjur. Hef ekki enn séð fisk fyrir utan þá sem tóku hjá mér. Ég fór á Leirutá í gær í mjög góðu veðri og sá vel ofan í vatnið. Ég sá ekki einn einasta fisk og varð ekki var þótt ég kastaði á alla helstu blettina þarna sem ég þekki eins og lófana á mér enda hef ég þarna veiðireynslu upp á um 400 ferðir á 30 árum. Á sama tíma voru kunningjar mínir á Öfugsnáða. Annar þeirra setti í 1 bleikju, en þeir urðu ekki meira varir og sáu ekki fisk. Þeir hittu mjög vanan veiðimann, sem var þá búinn að prófa í Vatnskoti, Nautatanga og víðar og varð hvergi var" sagði Björn í samtali við Veiðivísi.

Hann hefur haldið góða veiðibók undanfarin og og niðurstaðan er þessi. Sumarið 2013 veiddi Björn 148 bleikjur í 19 ferðum (7,8 að meðaltali í ferð). 2019 veiddi hann 55 bleikjur í 17 ferðum (3,2 bl. í ferð), 2020 veiddi hann 46 bleikjur í 16 ferðum (2,9 bl. í ferð). 2021 veiddi ég hann bleikjur 13 ferðum (1,9 bl. í ferð). Það er á öllu greinilegt að það þarf að rannsaka frekar hvað veldur þessari augljósu fækkun bleikjunnar í vatninu.






×