Í nýjustu greiningu Landsbankans kemur fram að launavísitalan hafi hækkað um 8,6 prósent á síðustu tólf mánuðum og kaupmáttur launa aukist um 0,9 prósent milli maímánaða 2021 og 2022. Kaupmáttur var engu að síður 1,5 prósentustigum minni en hann var í janúar, þegar kaupmáttur var sá mesti í sögunni.
Verðbólga hefur undanfarið hækkað óvenju mikið en hún mældist 7,6 prósent í maí og ársverðbólgan er nú 8,8 prósent. Ari Skúlason, hagfræðingur hjá hagfræðideild Landsbankans, segir landsmenn hafa búið við nokkuð einstakar aðstæður þar sem kaupmáttur hafi aukist stöðugt í hið minnsta frá árinu 2015.
„Stundum hefur kaupmátturinn aukist verulega mikið á hverju ári, minna núna, hann stendur í stað en svo koma áfangahækkanir inn á milli eins og gerðist núna í janúar og aftur í apríl og þá hoppar kaupmátturinn aðeins en annars er hann á leiðinni niður og ástæðan er auðvitað þessi mikla verðbólga,“ segir Ari.
Langt á milli aðila
Verðbólgan éti nú kaupmáttinn upp smám saman og ljóst sé að ekki væri von á frekari launahækkunum á þessu samningstímabili, sem ljúki í lok október. Þannig eigi kaupmáttur aðeins eftir að fara niður á við það sem eftir væri af þessu ári og viðbúið að verðbólga héldi áfram að hækka.
„Það er alveg útilokað að nokkrar launahækkanir haldi í við þessa verðbólgu sem er. Markmiðið hjá okkur er að vera með tvö til þrjú prósent verðbólgu en við erum núna í átta til níu prósent. Að ná henni niður í tvö til þrjú prósent tekur alla vega tvö ár þannig við verðum í þessari stöðu áfram,“ segir Ari.
Ari segir ljóst að erfið staða blasi við í kjaraviðræðum í haust. „Það verður bara mjög erfitt að ná endum saman og langt á milli aðila. Aðstæður eru auðvitað þannig að það er mikil óvissa og við erum í umhverfi sem við þekkjum ekkert sérstaklega vel,“ segir hann.
Laun verkafólks hækka mest
Ef litið er til launaþróunar ákveðinna hópa má sjá að laun hafa hækkað eilítið meira á opinbera markaðinum en hinum almenna frá því á fyrsta ársfjórðungi 2021. Launabreytingar hafa því jafnast milli markaða eftir að óvenju mikið bil myndaðist í upphafi árs 2021 og stendur nú í sjö prósentum á hinum almenna og 7,5 prósent á hinum opinbera.
Ef litið er til starfsstétta skera tvær stéttir sig nokkuð úr. Laun verkafólks hafa hækkað mest, um 9,1 prósent, og því næst laun þjónustu-, afgreiðslu- og sölufólks, 7,9 prósent, en laun annarra stétta hafa hækkað í kringum sex prósent.
Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 6,2 prósent þannig kaupmáttur hafði annað hvort lækkað eilítið eða staðið í stað meðal sumra hópa.