Charles Leclerc var á ráspól í dag en Verstappen annar í rásröðinni og liðsfélagi hans á Red Bull, Sergio Pérez, þriðji. Lewis Hamilton, á Mercedes, fór fram úr Pérez í þriðja sætið í ræsingunni og Bretinn hélt Mexíkóanum að bakvið sig alla keppnina.
Hann átti hins vegar erfitt með að halda í við þá fremstu tvo, en Leclerc og Verstappen slitu sig snemma frá pakkanum og börðust um forystuna. Leclerc gerði vel að halda Verstappen á bakvið sig en fljótlega eftir að Verstappen fór inn á þjónustusvæðið gerði Mónakóbúinn á Ferrari-bílnum afdrifarík mistök.
LAP 19/53
— Formula 1 (@F1) July 24, 2022
Absolute heartbreak for Leclerc and Ferrari #FrenchGP #F1 pic.twitter.com/qUmPlzWEVn
Leclerc var eðli málsins samkvæmt einn á auðum sjó eftir að Verstappen fór á þjónustusvæðið en á einhvern hátt missti hann stjórn á bílnum, missti afturendann og flaug út í dekkjavegg á breiðri brautinni í Frakklandi.
Hann lauk þar með keppni og Verstappen var eftirleikurinn auðveldur. Hann hélt forystunni allt til loka en Lewis Hamilton varð annar í mark. Liðsfélagi Hamiltons, George Russell, varð þá þriðji eftir mikla dramatík.
Russell hafði þá verið við afturenda Pérez í um tíu hringi þegar stafrænn öryggisbíll kom upp. Pérez sofnaði á verðinum þegar grænu flaggi var veifað til að marka endalok öryggisbílsins og Russell flaug fram úr þegar aðeins þrír hringir voru eftir.
George catches Checo sleeping and snatches P3! #FrenchGP #F1 pic.twitter.com/5U0j5ER7Vo
— Formula 1 (@F1) July 24, 2022
Liðsfélagi Leclerc hjá Ferrari, Carlos Sainz, hóf keppnina aftast í rásröðinni vegna vélarskipta fyrir keppni. Hann gerði vel að vinna sig upp röðina og náði best upp í þriðja sætið eftir glæsilegan framúrakstur á Pérez. Hann þurfti hins vegar að skipta um dekk í kjölfarið, og taka fimm sekúndna refsingu í leiðinni, og lauk keppni í 5. sæti.
Sigur Verstappen eykur forystu hans í keppni ökuþóra og stigasöfnun hans og Pérez auka þá einnig forystu Red Bull liðsins, sem leiðir keppni bílasmiða.