„Blazeaður, hún er náttúrulega komin í leitirnar,“ segir Erpur en blaðamaður hafði þá ekki náð að kynna honum erindið. DV greindi frá færslu Erps í dag þar sem hann sagði frá meintum þjófnaði. „Veskið, lyklarnir, snyrtidótið og öll fötin mín fyrir kvöldið voru sekknum," skrifaði Erpur í færslunni sem hefur nú verið eytt enda taskan fundin.
„Það voru einhverjir fagmenn sem sáu um þetta, hlutir hverfa ekkert lengi í Eyjum. Ég var tilbúinn að performa með færeyska hattinn. Ég hét nefnilega á Færeyjar að taskan myndi finnast, setti á mig færeyskan hatt - þú veist þetta með hliðarpungnum sko - og nú er ég bara með hattinn og ætla að vera með hann í kvöld á sviðinu. Það er eina leiðin,“ segir Erpur.
„Liðið er að klikkast“
Þá lá beinast við að spyrja hvernig stemningin í Eyjum væri.
„Það er búið að vera geðveikt í Eyjum, ógeðslega gott veður - ertu að grínast eða? Er ekki bara rigning í Reykjavík?,“ spyr Erpur en verður kannski fyrir örlitlum vonbrigðum þegar hann fær þau svör að það hafi bara verið fínasta veður í bænum.
„En það er bara búið að vera tryllt stemning. Nýja lagið okkar með Villa Neto er fyrsta lagið okkar í fimm ár þannig liðið er bara að klikkast.“
„Það er bara eins og Kim Larsen, Elvis Prestley og Bítlarnir séu bara komnir back in business.“
Erpur hefur síðustu ár einnig verið dyggur stuðningsmaður Mýrarboltans á Ísafirði og keppt þar ásamt liði sínu Maradona Social Club. Skipuleggjendum fórst þó fyrir að skipuleggja hátíðina í ár líkt og greint var frá í síðustu viku.
„Það þarf bara að hella bensíni á þann eld, ég hef verið oft á Mýrarboltanum og það er geðveikt. Bolvíkingarnir hafa bara verið í sundi, það er svo góð sundlaug þarna hjá þeim en um leið og þeir fara úr pottinum fara bollaleggingarnar að fæðast,“ sagði Erpur að lokum. Hann stígur á svið í nótt með Rottweiler hundum um klukkan 1.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2 um stemmninguna í Eyjum í gær: