Ísland komst upp úr riðli sínum og dróst gegn Bosníu í 8-liða úrslitum. Bosníska liðið byrjaði betur og leiddi 30-25 eftir fyrsta leikhluta. Ísland sneri taflinu við í öðrum leikhluta og var með tveggja stiga forskot, 48-46 í hálfleik.
Ísland jók forskotið í þriðja leikhlutanum en staðan var 74-65 fyrir fjórða og síðasta leikhlutann. Bosnía hjó býsna nærri íslenska liðinu á lokakaflanum en liðið lét forystuna aldrei af hendi og vann að lokum sex stiga sigur 95-89.
Óhætt er að segja að Norðurlandaþjóðir hafi gert vel á mótinu en öll fjögur sem eru í B-deildinni komust í undanúrslit. Ísland mun mæta Svíþjóð í undanúrslitum á morgun á meðan Danmörk og Finnland mætast í hinum undanúrslitaleiknum.
Almar Atlason had one of the best performances I've seen this summer, carrying Iceland to the semifinals of the FIBA U18 European Championship Division B. 22 points, 16 rebounds, 6 assists, 2 blocks. Absolute hooper with tremendous feel, skill, confidence and competitiveness. pic.twitter.com/fT76UYLb2z
— Jonathan Givony (@DraftExpress) August 5, 2022
Almar fær hól úr góðri átt
Tómas Valur Þrastarson, úr Þór Þorlákshöfn, var með tvöfalda tvennu fyrir Ísland í leiknum en hann skoraði 17 stig og tók ellefu fráköst. Þá var Daníel Ágúst Halldórsson, sem einnig leikur með Þórsurum, með 17 stig auk þess að gefa sjö stoðsendingar.
Almar Orri Atlason úr KR fékk hins vegar fyrirsagnirnar. Hann skoraði 22 stig, tók 15 fráköst auk þess að gefa sex stoðsendingar og verja tvö skot. Hann hlaut hrós eftir leik frá Jonathan Givony á Twitter. Givony er greinandi á nýliðavali NBA fyrir bandaríska miðilinn ESPN, auk þess sem hann stofnaði Draft Express, sem mörg lið bæði vestanhafs og austan hafa nýtt til að njósna um og greina leikmenn.
Givony sagði á Twitter: „Almar Atlason átti eina bestu frammistöðu sem ég hef séð í sumar, er hann leiddi Ísland í undanúrslitin á EM U18,“
Almar hefur skorað 20,6 stig að meðaltali á mótinu, tekið tólf fráköst og gefið þrjár stoðsendingar að meðaltali í leik.