Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir fyrir um gengi liðanna í Olís-deild karla en keppni í deildinni hefst með fjórum leikjum fimmtudaginn 8. september.
Íþróttadeild spáir Gróttu 10. sæti Olís-deildar karla í vetur og að liðið endi því í sama sæti þriðja árið í röð.
Síðan Grótta kom aftur upp í Olís-deildina hefur liðið haldið sér sannfærandi uppi og á síðasta tímabili voru Seltirningar hársbreidd frá því að komast í úrslitakeppnina.
Skömmu eftir að síðasta tímabili lauk hætti Arnar Daði Arnarsson óvænt sem þjálfari Gróttu eftir þriggja ára starf. Við af honum tók Róbert Gunnarsson. Þetta er fyrsta aðalþjálfarastarf silfurdrengsins og spennandi verður að fylgjast með hvernig honum reiðir af í því.
Nokkrar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Gróttu í sumar. Ólafur Brim Stefánsson skilur eftir sig stórt skarð í vörn og sókn en tveir bestu menn Seltirninga á síðasta tímabili verða áfram hjá liðinu; markvörðurinn Einar Baldvin Baldvinsson og Birgir Steinn Jónsson sem var einn allra besti leikmaður Olís-deildarinnar. Birgir er upphaf og endir alls í sóknarleik Seltirninga en vonandi fyrir þá getur Theis Koch Søndergård, sem Grótta fékk á láni frá Álaborg, létt aðeins undir með honum.
Grótta ætti að geta gert atlögu að sæti í úrslitakeppninni og það er væntanlega markmiðið eftir að hafa fest sig í sessi í deild þeirra bestu. Líklega er þó öruggast að setja aurinn sinn á að Seltirningar endi í 10. sætinu sínu.
Gengi Gróttu undanfarinn áratug
- 2021-22: 10. sæti
- 2020-21: 10. sæti
- 2019-20: 3. sæti (B-deild)
- 2018-19: 12. sæti
- 2017-18: 9. sæti
- 2016-17: 8. sæti+8-liða úrslit
- 2015-16: 5. sæti+8-liða úrslit+bikarúrslit
- 2014-15: B-deild (1. sæti)
- 2013-14: B-deild (4. sæti)
- 2012-13: B-deild (4. sæti)
Lykilmaðurinn

Ein bestu félagaskipti síðustu ára í íslenskum handbolta voru þegar Grótta fékk Birgi Stein Jónsson fyrir tveimur árum. Hann hefur fengið mikla ábyrgð á Nesinu sem hefur heldur betur valdeflt hann. Birgir var meðal hæstu manna í mörkum og stoðsendingum á síðasta tímabili og besti varnarmaður Olís-deildarinnar samkvæmt tölfræði HB Statz. Grótta heldur honum ekki endalaust og verður að reyna að hámarka árangur sinn meðan Birgir er í bláu treyjunni.
Félagaskiptamarkaðurinn
Komnir:
- Theis Koch Søndergård frá Álaborg (á láni)
- Þorgeir Bjarki Davíðsson frá Val
- Elvar Otri Hjálmarsson frá Fjölni
- Jóel Bernburg frá Val (á láni)
Farnir:
- Ívar Logi Styrmisson til Fram
- Ólafur Brim Stefánsson til Fram
- Sveinn Brynjar Agnarsson til ÍR (úr láni)
- Igor Mrsulja til Víkings
Markaðseinkunn (A-C): B
Fortíðarhetja sem gæti nýst í vetur
Grótta spilaði ekki með örvhentan leikmann hægra megin fyrir utan á síðasta tímabili og þótt Daníel Örn Griffin sé kominn aftur úr erfiðum meiðslum er hægri skyttustaðan sú veikasta hjá Gróttu. Þótt Halldór Ingólfsson sé þekktastur fyrir afrek sín með Haukum er hann uppalinn á Nesinu og myndi eflaust nýtast þessu Gróttuliði stórvel.