Enginn vafi er um hæfileika Browns en hann greip fleiri sendingar en nokkur annar leikmaður frá frumraun sinni í NFL-deildinni árið 2010 fram til ársins 2018. Á þeim árum lék hann með Pittsburgh Steelers en hann yfirgaf félagið eftir tímabilið 2018.
Kappinn hefur verið í töluverðum vandræðum síðan, ef einn NFL-meistaratitill er undanskilinn, en hann samdi við Oakland Raiders og varð hæst launaði hlaupari deildarinnar eftir brottförina frá Steelers.
Þar náði hann aldrei að spila deildarleik þar sem hann var rekinn eftir heiftarlegt rifrildi við Mike Mayock, framkvæmdastjóra liðsins, og fjölda annarra uppákoma utan vallar.
New England Patriots stökk þá til og samdi við Brown en hann spilaði aðeins einn leik fyrir félagið áður en hann var látinn fara vegna rannsóknar á meintu kynferðisafbroti Browns.
Hann var þá án liðs það sem eftir lifði af leiktíðinni 2019 og alla leiktíðina 2020. Þá fékk hann tækifæri að spila með Tom Brady og félögum í Tampa Bay Buccaneers og vann Ofurskálina með liðinu í febrúar 2021. Hann var aftur á móti rekinn frá félaginu tæpu ári síðar eftir að hann missti gjörsamlega stjórn á sér í leik við New York Jets.
Enn leitar hann sér liðs eftir það en óvíst er hvort að nýjasta færsla hans á samfélagsmiðla hjálpi til. Þar rekur hann nánast öll sín mistök utan vallar en segir sína mestu eftirsjá vera að geta ekki horft á sjálfan sig spila leikinn.
Sincerely AB pic.twitter.com/O6mjJXOaHQ
— AB (@AB84) August 11, 2022
„Stærsta eftirsjá ferils míns er ekki að hafa kallað framkvæmdastjóra minn bleiknefja (e. cracker) eða að mæta seint í æfingabúðir hjá Raiders í loftbelg með frosna fætur, ekki heldur að henda steinum í þennan UPS sendil, og það er klárlega ekki að rífa mig úr fötunum og ganga sigurhring um Jets-völlinn í miðjum leik haldandi uppi tveimur fingrum,“
„Mín stærsta eftirsjá er að ég mun aldrei geta séð mig, Antonio Brown, spila leikinn í beinni. Jú, ég get horft á leikinn eftir á, en ég get ekki ímyndað mér hvernig það hefur verið fyrir ykkur öll að sjá svoleiðis lagað. Líklega eins og Bítlarnir eða Jesús,“