Byggt og búið opnaði upphaflega sem nokkurskonar angi af Byko í Kringlunni í ágúst 1987. Þar fundust upphaflega vörur eins og skrúfur og fleira til byggingarvinnu auk helstu nauðsynlegu búsáhalda en þaðan kemur nafnið, að þar finnist flest sem þarf bæði til að byggja og búa.

Verslunin hefur alla tíð verið staðsett í suðurenda fyrstu hæðar Kringlunnar og frá upphafi verið mikilvægur hluti af því fjölbreytta vöruúrvali sem þar finnst. Í gegnum tíðina hefur ýmislegt breyst, meðal annars hafa orðið eigendaskipti og þó enn megi finna þar flest allt sem þarf í búið er lítið að finna í hillunum af vörum til byggingarvinnu. Í seinni tíð hafa skrúfurnar vikið fyrir gjafavöru en árið 2014 var þriðja hæð verslunarinnar tekin í gegn og vöruúrval gjafa- og lífstílsvöru stóraukið í kjölfarið.
40% afsláttur af Fissler vörum í dag
Byggt og búið er í dag alhliða verslun þar sem flest allt fæst til heimilisnota. Þar má finna allt frá pottum og pönnum yfir í gæða kaffivélar og önnur minni heimilistæki. Í versluninni má einnig finna gríðarlegt úrval sérhæfðra eldhúsáhalda og bakstursvöru ásamt borðbúnaði og jafnvel Bluetooth hátalara og heyrnartól.

Mikið úrval af allskyns pottum og pönnum er að finna í Byggt og búið, þar á meðal Fissler sem er þýskt vörumerki sem framleiðir meðal annars vandaða potta og pönnur til heimilisnota. Fissler eiga heiðurinn af hinni vinsælu Adamant húðun sem er háþróuð og margverðlaunuð viðloðunarfrí húðun sem er sérstaklega auðveld í umhirðu því á hana má nota stáláhöld.
Til þess að fagna 35 ára afmælinu verður 40% afsláttur af Fissler vörum í Byggt og búið í allan dag bæði í verslun og á byggtogbuid.is
