40 prósent meintra kókaínefna innihéldu alls ekkert kókaín Hólmfríður Gísladóttir skrifar 25. ágúst 2022 08:09 Í einu tilviki var aðeins um að ræða hreinan sykur og í öðrum efni á borð við talkúm. Getty Ríkisrekin rannsóknarmiðstöð þar sem neytendur eiturlyfja geta komið og látið prófa efnin sem þeir kaupa hefur nú verið starfrækt í Canberra í Ástralíu í einn mánuð en niðurstöður prófananna eru sláandi.
40 prósent þeirra efna sem notendum voru seld sem kókaín innihéldu alls ekkert kókaín og í öllum tilvikum var hreinleiki hinna meintu kókaínefna undir 27 prósentum. Í einu tilviki var aðeins um að ræða hreinan sykur og í öðrum efni á borð við talkúm. Þriðjungur þeirra sem komu með efnin til að láta prófa þau völdu að henda þeim eftir að niðurstöðurnar lágu fyrir. Öll efni sem seld voru sem heróín innihéldu eitthvað heróín og var hreinleiki þeirra á bilinu 31 til 63 prósent. Aðeins 65 prósent prufa sem voru sagðar innihalda MDMA innihéldu sannarlega efnið í einhverju magni. Prófessorinn David Caldicott, sem er einn þeirra sem hefur umsjón með hinu tímabundna verkefni, segir niðurstöðurnar sýna að fíklar séu ekki kjánar sem ekki sé hægt að ræða við. Ef þeir eru upplýstir, séu flestir reiðubúnir til að hlusta. Guardian greindi frá.
Ástralía Fíkn Mest lesið Vandasöm andlitslömun sem greinist vikulega á Íslandi Innlent Sviku út tugi milljóna með því að þykjast vera Brad Pitt Erlent Erfið umræða sem fólk hafi veigrað sér við að taka Innlent Þarf ekki að skerða heitt vatn í vetur vegna nýrrar borholu Innlent Ein kært nauðgun og fjórar segjast hafa verið beittar ofbeldi Innlent Ringulreið á lánamarkaði Innlent Forréttindi fyrir fámenna þjóð að hafa jafn öflugar flugsamgöngur Innlent „Þetta er ekki átak til einhverra daga eða vikna“ Innlent Risavaxin mörgæs slær í gegn Erlent Situr undir gelti, urri og að vera kölluð api Innlent Fleiri fréttir Sviku út tugi milljóna með því að þykjast vera Brad Pitt Risavaxin mörgæs slær í gegn Um 500 látin í árásum Ísraela á Líbanon Ætlaði sér að ráða Trump af dögum Fólk flýr Beirút undan mannskæðum árásum Ísraela Selenskíj heimsótti lykilríki og þakkaði fyrir vopnin Flúði þegar sveitir Maduro ætluðu að grípa hann Fimmtán á sjúkrahús eftir lestarslys í Svíþjóð Starfsmenn flýja framboð Robinson eftir „svartur nasisti“-hneykslið Fjórir myrtir og fjöldi særður eftir skotárás í Alabama Ísraelar ráðast í umfangsmiklar loftárásir og hvetja íbúa til að flýja Rússar gerðir afturreka með óvæntar tillögur á allsherjarþingi SÞ Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Sjá meira