Safronov fjallaði um hernaðarmál fyrir dagblöðin Vedomosti og Kommersant áður en hann var ráðinn sem aðstoðarmaður yfirmanns rússnesku geimferðastofnunarinnar Roskosmos. Hann starfaði þar í um tvo mánuði áður en hann var handtekinn í júlí 2020.
Safronov hafnar ásökunum um að hann hafi ljóstrað upp um hernaðarleyndarmál um vopnasölu Rússlands í Mið-Austurlöndum og Afríku. Saksóknarar halda því fram að hann hafi lekið upplýsingum um vopnasöluna til Tékklands, sem er aðildarríki NATO, árið 2017 en hann starfaði þá sem blaðamaður.
Fram kemur í frétt Reuters um málið að saksóknarar hafi tengt tékkneskan kunningja Safronovs í þessu samhengi en kunningi hans er blaðamaður sem hann kynntist í Moskvu árið 2010. Blaðamaðurinn umræddi stofnaði síðar veffréttamiðil sem Safronov hefur skrifað fyrir en Safronov segist aðeins hafa notað opinberar upplýsingar í skrifum sínum.
Að sögn verjenda Safronovs fóru saksóknarar fram á 24 ára fangelsisdóm yfir honum eftir að hann hafnaði því að játa glæpinn gegn „aðeins“ tólf ára dómi. Þeir segja jafnframt að dómurinn hafi neitað að taka við nýbirtri blaðagrein sem sönnunargagni á mánudag. Í greininni, sem birt var á rússneska fréttamiðlinum Proekt, kemur fram að stóran hluta þeirra upplýsinga sem Safronov er sakaður um að hafa lekið til Tékklands hafi þegar verið hægt að finna á internetinu þegar greinar hans birtust. Dómur yfir Safronov verður kveðinn upp 5. september næstkomandi.
Réttarhöldin yfir Safronov hafa skekið rússneskt samfélag og er litið á þau sem enn eina sönnun þess að grip stjórnvalda sé að herðast um alla kima samfélagsins. Frelsi fjölmiðla í landinu hefur skerst verulega undanfarna mánuði, frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst, en hefur farið minnkandi á undanförnum árum.
Sjálfstæðir fjölmiðlar, eins og Novaya Gazeta og Dozhd, hafa flúið landið og haldið starfsemi úti erlendis. Þá var stjórnarandstæðingurinn Leonid Gozman handtekinn á mánudag fyrir að hafa brotið lög, sem voru innleidd í fyrra, sem banna samanburð á kommúnisma og nasisma. Hámarksrefsing við slíku broti er fimmtán ára fangelsi. Samkvæmt frétt Reuters var Gozman handtekinn vegna færslna á samfélagsmiðlum sem hann birti árið 2020 þar sem hann skrifaði að Stalín hafi verið verri en Hitler.