Morgan gerði einnig kvikmyndina The Queen sem kom út árið 2006. Tökur standa nú yfir á sjöttu þáttaröð þáttanna. Til stóð að byrja að sýna fimmtu þáttaröðina af The Crown í nóvember en ekki liggur fyrir hvort dagsetningunni verði breytt. Imelda Staunton fer með hlutverk Elísabetar í þessari þáttaröð.
„Krúnan er ástaróður til drottningarinnar og ég hef engu við sögu hennar að bæta núna, öðru en þögn og virðingu,“ sagði Morgan í samtali við Deadline.
Eins og kom fram á Vísi fyrr í dag hefur Buckingham höll tilkynnt að Karl konungur sé búinn að taka ákvörðun um að þjóðarsorg muni ríkja frá deginum í dag þar til sjö daga eftir útför Elísabetar annarrar Bretadrottningar. Útfarardagur drottningarinnar verður opinber frídagur.
Allir opinberir fánar hafa nú verið dregnir í hálfa stöng og leiðbeiningar hafa verið sendar út um að hringja kirkjuklukkum á hádegi. Þá verður hleypt af 96 skotum í Hyde Park og víðar, einu sinni fyrir hvert ár sem drottningin lifði.