Orrifinn hannar bleiku slaufuna í ár Elísabet Hanna skrifar 30. september 2022 12:01 Slaufan í ár er hönnuð af Orrifinn. Skjáskot/Youtube Söfnunarátakið Bleika slaufan er farið af stað en í ár var slaufan hönnuð af þeim Helgu Friðriksdóttur og Orra Finnbogasyni hjá Orrifinn Skartgripum. Bleika slaufan er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins, tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum.
Passar inn í Fléttulínuna Slaufan passar inn í Fléttulínuna sem hefur verið vinsæl hjá OrriFinn í gegnum árin. Hún er úr bronsi og skreytt bleikri perlu. Slagorð átaksins í ár er: Sýnum lit. „Það var algjör hugljómun að vinna Bleiku slaufuna eins og hún væri hluti af Fléttu skartgripalínunni okkar. Merking Fléttu talar tungumál Bleiku slaufunnar fullkomlega, hún stendur fyrir umhyggju og vináttu," segir Helga. Orri og Helga segja sköpunarferlið hafa verið skrautlegt fyrir nágranna sína.Skjáskot/Youtube Helga er sjálf með BRCA genið og stendur málstaðurinn henni því nærri. Að vera með genið eykur líkur á krabbameini. Hér að neðan má sjá myndband þar sem Orri og Helga lýsa sköpunarferlinu á bak við slaufuna. Fjöldi fyrirtækja styður við málefnið Fjöldi fyrirtækja býður upp á að kaupa varning þar sem hluti eða allur ágóði sölunnar rennur til Krabbameinsfélagsins. Þar má nefna Blush, Urð, Misty, Hagkaup og Blómaval sem ræktar fagurbleika októberstjörnu sérstaklega til styrktar átaksins. Bleiki dagurinn fer fram 14. október og þá eru einstaklingar hvattir til þess að sýna lit, klæðast bleiku, bera slaufuna og sýna samstöðu. Sparislaufuna í ár er úr silfri. Um þriðjungur Íslendinga fær krabbamein á lífsleiðinni Einn af hverjum þremur Íslendingum má búast við að greinast með krabbamein á lífsleiðinni og árlega greinist að meðaltali 871 konur og 299 konur falla frá. Ár hvert bjarga skimanir fyrir krabbameini í leghálsi og brjóstum lífi fjölda kvenna. Því fyrr sem krabbamein eða forstig þess greinist því betri eru horfurnar. Hér er hægt að nálgast kennslumyndband og leiðbeiningar um brjóstaþreifingu.
Tíska og hönnun Skimun fyrir krabbameini Tengdar fréttir Safnaði tæpri 1,3 milljón til styrktar Bleiku slaufunni Eggert Unnar Snæþórsson, tvítugur tölvuleikjakappi, safnaði tæpum 1,3 milljónum króna til styrktar Bleiku slaufunni. Hann safnaði fjárhæðinni með því að spila tölvuleiki í 24 klukkustundir sem var varpað út í beinni og segist hann afar þakklátur öllum sem styrktu þetta verðuga verkefni. 17. október 2020 22:01 Bjóða upp fyrstu gullslaufuna Páll Sveinsson, yfirgullsmiður Jóns & Óskars, vann á dögunum hönnunarsamkeppni Félags Íslenskra Gullsmiða um hönnun Bleiku Slaufunnar í ár. 10. október 2018 16:45 Við leitum svara með þér og Bleiku slaufunni Til að að efla stuðning og ráðgjöf við þá sem greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra hefur Krabbameinsfélagið ákveðið að helga Bleiku slaufuna 2017 Ráðgjafarþjónustu félagsins. Mikil fjölgun hefur orðið á tíðni krabbameina undanfarin ár meðal annars vegna aukins mannfjölda og hærri meðalaldurs. 19. október 2017 07:00 „Þessi sjúkdómur er miskunnarlaus“ „Pabbi minn lést úr heilakrabbameini árið 2013 eftir mjög stutta baráttu. Þessi sjúkdómur miskunnarlaus og ég hvet alla til að fara til læknis ef minnsti grunur vaknar,“ segir hönnuðurinn Hlín Reykdal í samtali við Vísi. 28. september 2021 13:31 „Krabbamein fer ekki í sumarfrí“ Þær Svanheiður Lóa Rafnsdóttir brjóstaskurðlæknir og yfirmaður brjóstamiðstöðvar Landspítalans og Ólöf Kristjana Bjarnadóttir, brjóstakrabbameinslæknir, vilja hvetja allar konur til þess að þekkja líkamann sinn vel, þreifa brjóstin reglulega og mæta í skoðun þegar kallið kemur. 24. júní 2022 10:30 Mest lesið Matti Matt nú meistari Lífið Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Lífið Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Lífið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina Lífið samstarf Í Love Island eftir lífshættulegt slys Lífið Mikið um dýrðir á þjóðardegi Íslands í Japan Lífið Sydney Sweeney selur sápu úr skítugu baðvatni sínu Lífið Brad Pitt tjáir sig í fyrsta skipti um skilnaðinn Lífið Hamingjusöm pör noti mikið samanburð við aðra Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Matti Matt nú meistari Mikið um dýrðir á þjóðardegi Íslands í Japan Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Hamingjusöm pör noti mikið samanburð við aðra Í Love Island eftir lífshættulegt slys Sydney Sweeney selur sápu úr skítugu baðvatni sínu Jóhanna Guðrún gæsuð Brad Pitt tjáir sig í fyrsta skipti um skilnaðinn „Þetta tekur svo svakalega á sálartetrið“ Sjarmerandi miðbæjaríbúð listapars Heillaði að læra hefðirnar í Húsó Steldu senunni í veislu sumarsins Hefur lést um níu kíló eftir hjartaáfallið: „Maður vaknar svolítið við þetta“ Dreymir stanslaust kynlíf með öðru fólki en makanum Skvísurnar tóku yfir klúbbinn Tónlistarbransadrottning selur miðbæjarslotið Handlagin hjón selja tvær eignir í sögulegu farandshúsi Kjalar ástfanginn í tvö ár Diddú tíu þúsundasti gestur fótboltabullnanna Sú elsta í sögu Ungfrú Ísland glímdi við átröskun og varð minnst 39 kíló Alda Karen keppir í hermiakstri Var ekki að lifa lífinu heldur að þrauka það Eilish sópaði að sér verðlaunum á AMA-hátíðinni Kolféll fyrir New York en sér íslenska náttúru í hillingum Brauðtertu- og ostakökukeppni á Selfossi Sara Björk og Árni kaupa í Urriðaholti Senjórítur og Pálmi Gunnars stálu senunni á Rottweiler Eyjaherrar heiðruðu sjötugan Ásgeir í stjörnufans „Þessi þriggja daga hátíð er algjört konfekt” Sjá meira
Safnaði tæpri 1,3 milljón til styrktar Bleiku slaufunni Eggert Unnar Snæþórsson, tvítugur tölvuleikjakappi, safnaði tæpum 1,3 milljónum króna til styrktar Bleiku slaufunni. Hann safnaði fjárhæðinni með því að spila tölvuleiki í 24 klukkustundir sem var varpað út í beinni og segist hann afar þakklátur öllum sem styrktu þetta verðuga verkefni. 17. október 2020 22:01
Bjóða upp fyrstu gullslaufuna Páll Sveinsson, yfirgullsmiður Jóns & Óskars, vann á dögunum hönnunarsamkeppni Félags Íslenskra Gullsmiða um hönnun Bleiku Slaufunnar í ár. 10. október 2018 16:45
Við leitum svara með þér og Bleiku slaufunni Til að að efla stuðning og ráðgjöf við þá sem greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra hefur Krabbameinsfélagið ákveðið að helga Bleiku slaufuna 2017 Ráðgjafarþjónustu félagsins. Mikil fjölgun hefur orðið á tíðni krabbameina undanfarin ár meðal annars vegna aukins mannfjölda og hærri meðalaldurs. 19. október 2017 07:00
„Þessi sjúkdómur er miskunnarlaus“ „Pabbi minn lést úr heilakrabbameini árið 2013 eftir mjög stutta baráttu. Þessi sjúkdómur miskunnarlaus og ég hvet alla til að fara til læknis ef minnsti grunur vaknar,“ segir hönnuðurinn Hlín Reykdal í samtali við Vísi. 28. september 2021 13:31
„Krabbamein fer ekki í sumarfrí“ Þær Svanheiður Lóa Rafnsdóttir brjóstaskurðlæknir og yfirmaður brjóstamiðstöðvar Landspítalans og Ólöf Kristjana Bjarnadóttir, brjóstakrabbameinslæknir, vilja hvetja allar konur til þess að þekkja líkamann sinn vel, þreifa brjóstin reglulega og mæta í skoðun þegar kallið kemur. 24. júní 2022 10:30