Hafi viðkomandi ekki „þjónað hernámsliðinu eða svikið Úkraínu“, hafi þau ekkert að óttast.
„Hundruð þúsunda af okkar fólki bjó á tímabundið hernumdum svæðum,“ sagði Selenskí í ávarpi í gærkvöldi, samkvæmt New York Times. „Margir hjálpuðu her okkar og leyniþjónustum. Margir reyndu einfaldlega að lifa af og biðu endurkomu úkraínska fánans.“
Hann sagði að mikil áhersla yrði lögð á að koma lífi þessa fólks í eðlilegt horf.
Ummælin þykja til marks um góðan árangur Úkraínumanna á víglínunum gegn Rússum undanfarnar vikur. Rússar haf verið reknir frá stórum svæðum í Úkraínu.
Frelsa fjölda þorpa og bæja
Úkraínskir hermenn birta þessa dagana mikið af myndum af sér frelsa þorp og bæi úr höndum Rússa. Þorp þessu eru að mestu í Kherson-héraði, en einnig í Donetsk og norðar í Kharkív.
Rússar stjórna þó enn um einum sjötta af Úkraínu og að mestu í fimm héruðum, Luhansk, Donetsk, Saporisjíam, Kherson og Krímskaga, sem Rússar innlimuðu árið 2014. Þetta landsvæði er stærra en Portúgal en Rússar eru sagðir hafa flutt fjölmarga Úkraínumenn nauðungaflutningum frá þessu svæði og til Rússlands.
Selenskí sagði einnig í ávarpinu að varnir Úkraínumanna litu vel út og það væri augljóst í hvað stefndi.
„Sífellt fleiri óvinir flýja og óvinaherinn verður fyrir sífellt meira mannfalli,“ sagði Selenskí. Hann sagði einnig að í Rússlandi væru fleiri að átta sig á því að Rússar hefðu gert mikil mistök með því að ráðast inn í Úkraínu.
Til að sjá grófa mynd af stöðu mála í Úkraínu í gær má skoða meðfylgjandi kort frá hugveitunni Institute for the study of war.
NEW: Ukrainian forces have made substantial gains around #Lyman and in northern #Kherson Oblast over the last 24 hours. The Russian units defeated on these fronts were previously considered to be among #Russia s premier conventional fighting forces.https://t.co/qCfwrJolCF pic.twitter.com/GwXQBzxI0S
— ISW (@TheStudyofWar) October 4, 2022
Gengur best í Kherson
Svo virðist sem Úkraínumönnum gangi best þessa dagana í Kherson í suðri, þó þeir sæki fram gegn Rússum víða. Í Kherson hafa Úkraínumenn freslað fjölmörg þorp í dag og er útlit fyrir að Rússar hafi flúið af stóru svæði en þeir voru í hættu á því að verða mögulega umkringdir.
Auk þess að myndefni á samfélagsmiðlum sýni úkraínska hermenn ganga inn í frelsaðar byggðir hafa einnig birst myndbönd af íbúum annara bæja hífa úkraínska fánann að húni eftir brotthvarf rússneskra hermanna.
More advancement is expected along the Inhulets River as it is believed that the Russian Army evacuated Novodmytrivka, Velyka Oleksandrivka & Mala Oleksandrivka villages.
— BlueSauron (@Blue_Sauron) October 4, 2022
Meanwhile in Velyka Oleksandrivka the flag has been raised by locals waiting for the arrival of UAF. pic.twitter.com/b9X2ZRsBNj
Til marks um gott gengi Úkraínumanna má sýna kort sem vinsælir rússneskir herbloggarar birtu í morgun af stöðunni í Kherson og svo annað sem þeir birtu fyrir skömmu.
RRussian media Rybar's latest map shows how dire the situation is in northern Kherson for Russia. These maps are 4 hours apart. pic.twitter.com/d8ZrxOdLZS
— Kyle Glen (@KyleJGlen) October 4, 2022
Vikur í að herkvaðning skili einhverjum árangri
Til að reyna að fylla upp í raðir sínar og bæta varnir sínar hafa ráðamenn í Rússlandi hafið herkvaðningu og segja að um þrjú hundruð þúsund manns verði skikkaðir til herþjónustu og sendir til Úkraínu. Embættismenn í Vesturlöndum, sem blaðamaður Wall Street Journal ræddi við, segjast sjá vísbendingar um að Rússar eigi í miklum vandræðum með skipulag herkvaðningarinnar.
Sjá einnig: Leiðtogi Téténa sendir fjórtán til sextán ára syni sína til Úkraínu
Rússar hafa þegar sent menn sem skikkaðir hafa verið til herþjónustu til Úkraínu, án nokkurrar þjálfunar, en áðurnefndir embættismenn segja að það muni taka minnst einhverjar vikur fyrir herkvaðninguna að skila Rússum betri vörnum gegn Úkraínumönnum.
Úkraínumenn vinna að því að bæta stöðuna fyrir veturinn og reka Rússa frá eins stóru svæði og þeir geta áður en bleyta og kuldi gerir gagnárásir erfiðari. Rússar reyna á sama tíma að halda aftur af Úkraínumönnum, víðast hvar.
Sjá einnig: Úkraínuher sækir fram í suðri og austri
Gera enn árásir nærri Bakhmut
Þrátt fyrir að hafa verið á hælunum í nokkrar vikur hafa Rússar ekkert látið af ítrekuðum tilraunum sínum til að að sækja fram nærri Bakhmut í Donetsk. Þar hafa Rússar gert linnulausar árásir, leiddar af málaliðum Wagner Group, á Úkraínumenn.
Árangur af þeim árásum hefur þó verið verulega takmarkaður en sérfræðingjar telja pólitískar ástæður liggja fyrir því að Rússar hafi ekki flutt hermenn frá víglínunni við Bakhmut og reynt að styrkja varnir sínar þar sem Úkraínumenn herja á þá.