AC Milan fór með 2-1 sigur af hólmi þegar liðið fékk Juventus í heimsókn á San Siro í stórleik helgarinnar í ítölsku A-deildinni í fótbolta karla.
Miðvörðurinn Fikayo Tomori kom AC Milan á bragðið með marki í uppbótartíma fyrri hálfleiks og Brahim Diaz gulltryggði sigur heimamanna með því að skora í upphafi seinni hálfleiks.
Þessi sigur fleytti AC Milan upp að hlið toppliða deildarinnar, Napoli og Atalanta, sem eiga þó bæði leik góða á Mílanóliðið.
Juventus er hins vegar í áttunda sæti deildarinnar með 13 stig, sjö stigum á eftir liðunum sem tróna á toppnum.