Þurfum við föstudaga? Tómas Ragnarz skrifar 28. október 2022 09:30 Í áratugi höfum við skoðað leiðir til að auðvelda föstudaga á skrifstofunni; hvort sem það eru morgunverðarhlaðborð, bjór í hádeginu, hversdagslegri klæðnaður, styttri vinnudagur eða annað sprell. Því er kannski ekki nema von að sífellt fleiri séu farin að spyrja sig hvort yfirleitt sé þörf á föstudögum. Fyrirtæki og stofnanir eru í það minnsta farin að draga mjög úr vægi föstudaga í vinnuvikunni. Starfsfólk hefur fengið aukið val um hvernig það vill haga starfi sínu í lok vinnuvikunnar, mörg vinna meira heima á föstudögum og víða hefur fjögurra daga vinnuvika verið við lýði án formlegrar ákvörðunar um það. Fjölmargir starfsmenn eru jafnvel farnir að dreifa frídögunum sínum þannig að þeir geti tekið sér frí á hverjum einasta föstudegi í þrjá mánuði. Föstudagar eru enda kjörnir frídagar því við elskum öll lengri helgi. Heimsfaraldurinn flýtti dauða föstudagsins á skrifstofunni eftir því sem fleiri tömdu sér blandað vinnufyrirkomulag. Til hvers að gera sér ferð í vinnuna þegar þú getur sinnt vinnunni þinni heima hjá þér, á næsta kaffihúsi eða í fjarvinnuaðstöðu í næsta nágrenni? Þróun síðustu tveggja ára hefur breytt skilningi okkar á því hvar og hvernig vinnan skuli fara fram og hvað skilar sér í mestum afköstum. Því er auðvitað spurt: „Þurfum við föstudaga lengur?“ Rannsóknir styðja tóm skrifborð Gögn Regus sýna að fyrirtæki á heimsvísu eru horfa upp á þriggja daga vinnuviku á skrifstofunni. Í Bretlandi gefur úttekt Regus til kynnna að aðsókn á skrifstofuna er 23% meiri á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum en á mánudögum og föstudögum. Talsmaður Kastle Systems, sem þjónustar 2.600 byggingar víðs vegar um Bandaríkin, sagði í samtali við Washington Post að aðeins 30% starfsmanna hafi farið í vinnu á föstudögum í júní, minnst allra virka daga. En hvaða máli skiptir þetta? Þurfa vinnuveitendur að hafa áhyggjur af því að skrifborðin séu tóm áður en vinnuvikunni lýkur formlega – eða gæti þetta hreinlega talist jákvætt? Stutta svarið við spurningunni er að auðvitað eru skrifborð fólks ekki tóm. Fólk situr bara við fleiri mismunandi skrifborð; kannski er það með eitt heima hjá sér, annað á bókasafninu og það þriðja í sveigjanlegu vinnurými nálægt heimili sínu. Ef eitthvað er að marka rannsóknir þá er þetta jákvæð þróun. Aukinn sveigjanleiki er líklegri til að skila sér í afkastameiri og ánægðari starfsmönnum. Í skýrslu Catalyst kom þannig í ljós að starfsmenn með aðgang að fjarvinnumöguleikum eru 63% líklegri til að segjast vera „nýstárlegir“ og 75% líklegri til að segjast taka „virkan þátt“ í starfi sínu. Þessar niðurstöður eiga sér stoð í rannsóknum Regus, sem leitt hafa í ljós að næstum þriðjungur svarenda (31%) sagðist telja að framleiðni sín hefði aukist með blendingsfyrirkomulagi. Föstudagar heima snúast því ekki um að fólk sé að skrópa í vinnuna, þvert á móti snúast þeir um að gera lífið auðveldara og vinna betur. Föstudagsfundurinn klukkan 16:00 er ekki málið Þetta er þó ekki óumdeilt. Til eru atvinnurekendur sem enn deila um það hvort föstudagur sé ómissandi vinnudagur eða dagurinn til að gefa starfsmönnum meira frelsi. Hinn litríki Mike Ashley hjá Frasers Group hefur að eigin sögn bannað starfsfólki að vinna heima hjá sér á föstudögum vegna þess að það bitni á afköstum þess. Og það eru alltaf þessar sögusagnir af stjórnendum sem skipuleggja endurtekna fundi klukkan 16:00 á föstudögum til að halda fólki í vinnunni að óþörfu. Aftur á móti ákváðu fyrirtæki eins og Sonyað fara aðra leið. Á föstudögum á sumrin leyfðu þau „starfsmönnum að verja hálfum vinnudegi í að forgangsraða velferð sinni sjálfir.“ Sífellt fleiri fyrirtæki hafa þó gengið enn lengra, eins og Fintech-sprotafyrirtækið Bolt, og afskrifað föstudagsvinnuna með öllu og tekið upp fjögurra daga vinnuviku. Stofnandi Bolt, Ryan Breslow, sagði að breytingin „samræmdist breyttum vinnuaðferðum fólks“ og bætti við: „Vinnan mun fylla rýmið sem þú gefur henni. Ég er því að veðja á að við verðum mun duglegri frá mánudegi til fimmtudags.“ Föstudagar eru vissulega afslappaðri en aðrir dagar – í hvaða formi sem föstudagarnir eru – en það er augljóst að það er ekki valkostur fyrir öll fyrirtæki eða stofnanir að gefa hann upp á bátinn. Það sem er hins vegar augljóst er að starfsmenn elska sveigjanleika og skýra virðingu fyrir heimilislífi sínu og fjölskyldu. Föstudagur án þess að vera fastur í umferðinni, föstudagur heima, í slökun og með möguleika á að brjóta daginn upp eins og þú vilt. Þetta er einföld gjöf sem vinnuveitendur geta boðið starfsfólki sínu og sífellt fleiri eru farnir að gera. Sveigjanleiki og sparnaður Rannsóknir frá Global Workspace Analytics sýna að innleiðing blendingsvinnu og notkun sveigjanlegs skrifstofurýmis þýðir að fyrirtæki spara hefðbundinn fastan kostnað eins og leigu, hita og auka mannskap – sparnaður sem getur numið meira700 þúsund krónum á starfsmann á mánuði. Sveigjanleg kjör tæla einnig besta starfsfólkið til fyrirtækis þíns. 72% skrifstofustarfsmanna myndu kjósa langtímasveigjanleika umfram 10% launahækkun, samkvæmt tölfræðiRegus. Staðreyndin er sú að fyrir meirihluta fólks sem nú þegar vinnur og hefur upplifað ávinninginn af blendingsvinnu er erfitt að fara aftur í gamla farið. Tilhugsunin um að þurfa að sitja við tiltekið skrifborð í sama hólfi í ákveðinn fjölda daga og klukkustunda hljómar forneskjulega og þreytt núna þegar við hugsum um það. Og hversu afkastamiklir eru þessir föstudagsfundir þegar fólk er þegar með hugann við samverustundirnar um helgina með sínu allra besta fólki? Höfundur er eigandi og framkvæmdastjóri Regus á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Vinnustaðurinn Fjarvinna Vinnumarkaður Mest lesið Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun Það sem voru „bjartari tímar“ í fyrra eru nú bölvaðar skattahækkanir Þórður Snær Júlíusson Skoðun Ólaunuð vinna kvenna Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir Skoðun Framtíð Suðurlandsbrautar Birkir Ingibjartsson Skoðun Gagnrýni á umfjöllun um loftslagsmál og landnotkun í bókinni Hitamál Eyþór Eðvarðsson Skoðun Íslenska er leiðinleg Nói Pétur Á Guðnason Skoðun Ólögmæt mismunun eftir búsetu öryrkja fest í lög á Íslandi Jón Frímann Jónsson Skoðun Lágpunktur umræðunnar Jón Pétur Zimsen Skoðun Hverjum voru ráðherrann og RÚV að refsa? Júlíus Valsson Skoðun Hvað hafa sjómenn gert Samfylkingunni? Sigfús Karlsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um Fjarðarheiðargöng Þórhallur Borgarsson skrifar Skoðun Réttlæti án sannleika er ekki réttlæti Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Hvað hafa sjómenn gert Samfylkingunni? Sigfús Karlsson skrifar Skoðun Framtíð Suðurlandsbrautar Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Pípararnir okkar - Fagstéttin, metfjöldi, átakið, stuðningur Snæbjörn R. Rafnsson skrifar Skoðun Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson skrifar Skoðun Ég ákalla! Eyjólfur Þorkelsson skrifar Skoðun Gagnrýni á umfjöllun um loftslagsmál og landnotkun í bókinni Hitamál Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Samgöngumálið sem ríkisstjórnin talar ekki um Marko Medic skrifar Skoðun Mannréttindaglufur og samgönguglufur Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ólaunuð vinna kvenna Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Stjórnvöld beita sleggjunni og ferðaþjónustan á að liggja undir höggum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Ólögmæt mismunun eftir búsetu öryrkja fest í lög á Íslandi Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Ísland er á réttri leið Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Sameining vinstrisins Hlynur Már V. skrifar Skoðun Lágpunktur umræðunnar Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Almenningur og breiðu bök ríkisstjórnarinnar Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Það sem voru „bjartari tímar“ í fyrra eru nú bölvaðar skattahækkanir Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hverjum voru ráðherrann og RÚV að refsa? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Íslenska er leiðinleg Nói Pétur Á Guðnason skrifar Skoðun Þrjú slys á sama stað en svarið er: Það er allt í lagi hér! Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Réttar upplýsingar um rekstur og fjármögnun RÚV Stefán Eiríksson,Björn Þór Hermannsson skrifar Skoðun Kjósið reið og óupplýst! Ragnheiður Kristín Finnbogadóttir skrifar Skoðun Ekkert barn á Íslandi á að búa við fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Árásir á gyðinga í skugga þjóðarmorðs Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hundrað doktorsgráður Ólafur Eysteinn Sigurjónsson skrifar Skoðun EES: ekki slagorð — heldur réttindi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Að þjóna íþróttum Rögnvaldur Hreiðarsson skrifar Skoðun „Quiet, piggy“ Harpa Kristbergsdóttir skrifar Skoðun Ísland er ekki í hópi þeirra sem standa sig best í loftslagsmálum Eyþór Eðvarðsson skrifar Sjá meira
Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun
Skoðun Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson skrifar
Skoðun Gagnrýni á umfjöllun um loftslagsmál og landnotkun í bókinni Hitamál Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Stjórnvöld beita sleggjunni og ferðaþjónustan á að liggja undir höggum Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Það sem voru „bjartari tímar“ í fyrra eru nú bölvaðar skattahækkanir Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Réttar upplýsingar um rekstur og fjármögnun RÚV Stefán Eiríksson,Björn Þór Hermannsson skrifar
Að kveikja í húsinu af því þú færð ekki að ráða öllu – Sannleikurinn um „fórnarlambið“ Sönnu Guðröður Atli Jónsson Skoðun