Leikir vikunnar
Dusty 6 – 16 NÚ
Í fyrsta leik umferðarinnar töpuðu Íslandsmeistarar Dusty stórt fyrir NÚ í Mirage. NÚ náði snemma góðu forskoti með Bl1ck og Ravle í fararbroddi en þegar vörn Dusty fór að virka gat liðið minnkað muninn í 6-5 fyrir NÚ. Undir lok fyrri hálfleiks steig Bjarni upp og sýndi fyrrum liðsfélögum sínum hvernig á að gera þetta og var staðan því 9-6 fyrir NÚ í hálfleik.
Ekki var síðari hálfleikur betri fyrir Dusty sem áttu í eintómum vandræðum með efnahaginn og unnu ekki eina einustu lotu. Niðurstaðan var því stórsigur NÚ sem hleypir miklu lífi í baráttunna á toppi deildarinnar.
Breiðablik 16 – 11 SAGA
Leikur Breiðabliks og SAGA í Nuke kortinu var afar kaflaskiptur. Breiðablik vann fyrstu tvær loturnar en SAGA jafnaði um hæl. Þá tók Breiðablik 6 lotur í röð þar sem Viruz fór á kostum á vappanum. SAGA minnkaði muninn aftur niður í eitt sitg með góðum spretti þar sem WZRD hélt sprengjusvæðinu og nýtti sér mistök Breiðabliks til að skapa liðsfélögum sínum tækifæri.
SAGA tók svo loks fram úr Blikunum í upphafi síðari hálfleiks en þegar hraðar aðgerðir þeirra hættu að virka gat liðið ekki dregið neitt nýtt upp úr hattinum og missti því leikinn frá sér á afar skömmum tíma.
LAVA 14 – 16 Ármann
Það var jöfn og spennandi viðureign þegar LAVA tók á móti Ármanni í Nuke. LAVA hafði forystuna framan af þar sem allir leikmenn liðsins lögðu sitt af mörkum til að koma LAVA í 7-2. Síðustu 6 loturnar féllu þó með Ármanni þar sem Ofvirkur fór hamförum á vappanum og naut stuðnings Lambo og Vargs.
Upp frá því var leikurinn jafn fram á lokametrana en tvær lotur í röð þar sem Ármanni tókst að sprengja sprengjurnar gerðu útslagið og nældi Ármann sér því í sinn fjórða sigur á tímabilinu til þessa.
Þór 16 – 12 TEN5ION
Nýliðinn Moshii var áberandi í leik TEN5ION gegn Þór í Dust 2. Velgengni TEN5ION framan af byggði á snjöllum aðgerðum Moshii en þegar Minidegreez í Þór komst upp á lagið með að taka hann út snemma féll botninn úr sóknarleik TEN5ION og Þór vann fyrri hálfleikinn 9-6.
Í síðari hálfleik juku Þórsarar enn á forskotið en þegar sigurinn var svo gott sem í höfn átti TEN5ION góðan sprett sem minnkaði muninn úr 6 stigum niður í 2. Þó þeir vinni ekki oft stórt búa Þórsarar þó yfir þeirri seiglu sem þarf til að vinna leiki, nokkuð sem vantað hefur upp á hjá TEN5ION. 16-12 sigur Þórs var þeirra sjötti á tímabilinu og sitja Þórsarar því kátir á toppi töflunnar eftir þessa umferð.
Fylkir 4 – 16 Viðstöðu
Lokaleikur umferðarinnar var viðureign Fylkis og Viðstöðu í Mirage. Fylkismenn komust snemma yfir 4-3 en fleiri urðu ekki stigin þeirra í þessum leik. Alle og Blazter í Viðstöðu fóru hreinlega á kostum og héldu liðinu uppi í 8 lotu runu í fyrri hálfleik til að gjörsamlega brjóta Fylki á bak aftur.
Eftirleikurinn var svo auðveldur þar sem Fylkismenn virtust bæði uppgefnir og kærulausir og nældi lið Viðstöðu sér þannig í sinn þriðja sigur á tímabilinu.
Staðan

Þó nokkrar breytingar hafa orðið á töflunni. Þór og NÚ unnu sína leiki og skutu sér þannig upp fyrir Dusty sem situr í 3. sæti, 2 stigum á eftir toppliði Þórs. Sigur Ármanns á LAVA skaut þeim upp í 4. sætið en LAVA og Breiðablik eru einnig með 8 stig. SAGA féll um tvö sæti en lið Viðstöðu laumaði sér upp fyrir þá og eru því Fylkir og TEN5ION ein eftir á botninum, 2 og 3 sigrum á eftir næstu liðum.
Næstu leikir
8. umferðin fer fram dagana 1. og 3. nóvember og er dagskráin eins og hér segir:
- Ármann – TEN5ION, þriðjudaginn 1. nóvember kl. 20:30
- Viðstöðu – NÚ, þriðjudaginn 1. nóvember kl. 20:30
- SAGA – Dusty, fimmtudaginn 3. nóvember kl. 19:30
- LAVA – Fylkir, fimmtudaginn 3. nóvember kl. 20:30
- Þór – Breiðablik, fimmtudaginn 3. nóvember kl. 21:30
Sýnt verður frá leikjunum í beinni á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.