Erlent

Grænlendingar opna fyrsta hluta nýs alþjóðaflugvallar

Kristján Már Unnarsson skrifar
Syðri hluti nýju flugbrautarinnar í Nuuk, sem núna er búið að taka í notkun. Til hægri sést hvar nýja flugstöðin rís. Fjær sést gamla flugbrautin.
Syðri hluti nýju flugbrautarinnar í Nuuk, sem núna er búið að taka í notkun. Til hægri sést hvar nýja flugstöðin rís. Fjær sést gamla flugbrautin. Kalaallit Airports

Hluti nýju flugbrautarinnar í Nuuk var opnaður flugumferð í vikunni. Þetta er fyrsti stóri áfanginn sem næst í þeirri miklu flugvallagerð sem Grænlendingar hófu fyrir þremur árum en hún er mesta innviðauppbygging í sögu þessa næsta nágrannalands Íslendinga.

Alls voru 930 metrar af fyrirhugaðri 2.200 metra langri flugbraut teknir í notkun. Fyrsta flugtakið var síðastliðinn fimmtudagsmorgun þegar Dash 8-200 flugvél Air Greenland hóf sig til flugs af nýju brautinni áleiðis til Kangerlussuaq-flugvallar.

Flugvél Icelandair við núverandi flugstöð í Nuuk. Gamla flugbrautin til hægri. Ofar og fjær til hægri sést í syðri hluta nýju brautarinnar. Ofarlega vinstra megin sést svo nýja flugstöðin rísa.Kalaallit Airports

Gamla flugbrautin er 950 metra löng en hún var tekin í notkun árið 1979. Með því að flytja flugumferðina af gömlu brautinni skapast betra svigrúm fyrir verktaka til að ljúka gerð nýju brautarinnar, sem á að vera fullbúin árið 2024.

Jafnframt er unnið að byggingu nýrrar flugstöðvar en Nuuk-flugvelli er ætlað að taka við hlutverki Kangerlussuaq sem aðalflugvöllur Grænlands.

Nýja flugstöðin verður vegleg bygging.Kalaallit Airports

Samhliða stækkun Nuuk-flugvallar er verið að leggja nýja 2.200 metra langa flugbraut við bæinn Ilulissat við Diskó-flóa og á það verk einnig að klárast árið 2024. Þriðja stóra flugvallaframkvæmdin er gerð nýs flugvallar við Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands. Brautin þar verður 1.500 metra löng og er áætlað að hún verði tilbúin árið 2025.

Hér má sjá fyrsta flugtakið af nýju brautinni í Nuuk síðastliðinn fimmtudag í myndbandi frá Kalaallit Airports, flugvallafélagi Grænlands:

Í þessari frétt fyrir þremur árum var flugvallauppbyggingu Grænlands lýst með viðtali við Kim Kielsen, þáverandi forsætisráðherra:


Tengdar fréttir

Vonast til að öryggis- og varnarsamstarf borgi rekstur Kangerlussuaq-flugvallar

Stærsti stjórnmálaflokkur Grænlands, Siumut, vonast til að samningar um öryggis- og varnarsamstarf við danska herinn, og hugsanlega einnig Bandaríkin, greiði hluta af þeim kostnaði sem fylgir því að reka flugvöllinn í Kangerlussuaq áfram eftir að hann missir hlutverk sitt sem aðalflugvöllur Grænlands eftir tvö ár. Þetta sagði talsmaður flokksins, Doris J. Jensen, í umræðum í grænlenska þinginu í liðinni viku.

Suður-Grænland fær loksins nýjan flugvöll

Eftir marga ára vandræðagang vegna fjárskorts, tvö útboðsferli og ítrekaðar frestanir virðist gerð nýs aðalflugvallar Suður-Grænlands við bæinn Qaqortoq loksins í höfn. Flugvallafélag landsstjórnar Grænlands hefur undirritað samning við verktaka um gerð flugbrautarinnar og á hún að vera tilbúin haustið 2025 en loðnutekjur af Íslandsmiðum tryggðu fjármögnun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×