Viðskipti innlent

Icelandair flýgur til Prag og Barcelona

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Icelandair kynnir tvo nýja áfangastaði í sumar, Prag og Barcelona
Icelandair kynnir tvo nýja áfangastaði í sumar, Prag og Barcelona Vísir/Vilhelm

Icelandair hefur kynnt tvo nýja áfangastaði í millilandaflugi sumarið 2023, Prag og Barcelona. Þetta er í fyrsta sinn sem félagið flýgur áætlunarflug til Prag. Flogið verður í morgunflugi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair. Þar segir að flogið verði fjórum sinnum í viku til Prag, þriðjudag, fimmtudag, föstudag og sunnudag. Fyrsta flug verður 1. júní 2023 og flogið verður út október 2023. „Prag er sögufræg borg og sívinsæl fyrir borgarferðir og bætist því við áhugaverður áfangastaður í sterkt leiðarkerfi Icelandair bæði fyrir tengifarþega og Íslendinga,“ segir í tilkynningunni.

Prag er sögufræg borg og vinsæl fyrir borgarferðirIcelandair

Tvö til þrjú flug í viku til Barcelona

Flogið verður til Barcelona tvisvar til þrisvar í viku, frá 1. apríl 2023 og út október. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Icelandair flýgur til borgarinnar en áður hefur verið það verið með síðdegisflugi. Í tilkynningunni kemur fram að með morgunflugi opnist nýir möguleikar á tengiflugi milli Norður-Ameríku og Barcelona. Þar segir einnig að Barcelona bjóði upp á fjölbreytt ferðarlög en borgin er vinsæll áfangastaður þegar kemur að mat, menningu og arkitektúr. Jafnframt er sólarströnd í miðri borg.

Barcelona er vinsæll áfangastaður þegar kemur að mat, menningu og arkitektúr.Icelandair

Stórbættar tengingar við Ameríku

Haft er eftir Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair, að félagið sjái mikil tækifæri í að bjóða morgunflug til borganna tveggja sem tengist vel inn í Norður-Ameríku flug þeirra. „Sem stendur eru fáar flugtengingar frá Prag til Bandaríkjanna og Kanada og munum við því stórbæta tengingar á milli þessara markaða auk þess að bjóða upp á þægilega brottfaratíma milli Íslands og Prag,“ segir Bogi Nils Bogason.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×