Sjáðu fyrsta mark Orra fyrir FCK Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. nóvember 2022 16:01 Orri Steinn Óskarsson er kominn á blað með aðalliði FC Kaupmannahafnar. getty/Lars Ronbog Orri Steinn Óskarsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir aðallið FC Kaupmannahafnar þegar það vann Thisted, 1-3, í sextán úrslitum dönsku bikarkeppninnar í gær.
Dönsku meistararnir þurftu að hafa mikið fyrir því að vinna Thisted sem leikur í C-deildinni og þurfti framlengingu til að komast áfram í átta liða úrslitin. Orri var í byrjunarliði FCK í gær og þakkaði traustið. Hann kom liðinu yfir á 22. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf Christians Sörensen, fyrrverandi leikmanns Þróttar. Þetta var fyrsta mark Orra fyrir aðallið FCK en hann hefur skorað grimmt fyrir yngri lið félagsins. Orri var tekinn af velli á 61. mínútu og í hans stað kom Andreas Cornelius. Og hann reyndist hetja FCK því hann skoraði tvö mörk í framlengingunni og tryggði liðinu sigurinn. Mörkin og allt það helsta úr leiknum má sjá hér fyrir neðan. Ísak Bergmann Jóhannesson var í byrjunarliði FCK líkt og Orri en var tekinn af velli í hálfleik. Hákon Arnar Haraldsson var ekki í leikmannahópi liðsins. Orri, sem er átján ára, hefur leikið átta leiki fyrir aðallið FCK og skorað eitt mark. Hann kom til FCK frá Gróttu fyrir tveimur árum. Hann byrjaði að spila með Gróttu í 2. deild þegar hann var aðeins þrettán ára og lék alls fimmtán leiki í deild og bikar fyrir liðið áður en hann fór utan. Orri hefur leikið 28 leiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað fimmtán mörk.
Danski boltinn Mest lesið Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Úr Bestu heim í Hauka Íslenski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Fleiri fréttir Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist Sjá meira