Handbolti

FH hefur ekki sótt gull í greipar Akur­eyringa undan­farin ár

Árni Gísli Magnússon skrifar
FH hefur átt erfitt uppdráttar á Akureyri undanfarin ár.
FH hefur átt erfitt uppdráttar á Akureyri undanfarin ár. vísir/elín

KA og FH mætast í Olís-deild karla í handbolta í KA-heimilinu kl. 16:00 í dag. Gestunum hefur gengið einkar illa á Akureyri undanfarin tímabil. Fyrir leik dagsins er KA í 8. sæti á meðan FH er í 4. sæti Olís deildarinnar. 

FH hefur gengið illa í deildarleikjum sínum fyrir norðan undanfarin ár og hefur ekki enn tekist að vinna KA í KA-heimilinu eftir að liðið hóf að spila á ný í efstu deild undir eigin formerkjum tímabilið 2018-19 eftir að hafa komist upp í efstu deild í fyrstu tilraun árið áður.

FH sigraði Þór á þarsíðasta tímabili í Höllinni á Akureyri en ef horft á leiki FH gegn KA og Akureyri Handboltafélagi kemur í ljós að síðasti sigur liðsins norðan heiða gegn þessum liðum kom þann 30. mars 2015 gegn Akureyri Handboltafélagi en lokatölur urðu þá 19-27 fyrir FH.

Það er komið meira en sjö og hálft ár frá þessum sigri og verður því áhugavert að sjá hvernig leikar fara í dag.

Yfirlit frá útileikjum FH gegn norðanliðunum má sjá hér að neðan.

Tímabil: Úrslit

  • 2021-22: 32-27 sigur KA
  • 2020-21: 30-29 sigur KA | FH sigrar Þór 20-24
  • 2019-20: 31-27 sigur KA
  • 2018-19: 29-26 sigur KA | 27-26 sigur Akureyri Handboltafélags
  • 2017-18: Ekkert lið að norðan í efstu deild
  • 2016-17: 24-24 jafntefli við Akureyri Handboltafélag
  • 2015-16: 25-20 sigur Akureyri Handboltafélags
  • 2014-15: 19-27 sigur FH á Akureyri Handboltafélagi

Leikur KA og FH verður sýndur beint á Stöð 2 Sport, útsending hefst 15.50. Leikurinn verður einnig í beinni textalýsingu hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×