Innlent

„Við lögum ekki slæma á­kvarðana­töku með annarri slæmri á­kvarðana­töku“

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Alexandra Briem formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur.
Alexandra Briem formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Vísir/Arnar

Formaður Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar segir óráð að fylla upp í Árbæjarlón að svo stöddu en tæming þess var nýlega úrskurðuð ólögmæt. Ekki sé hægt að laga eina slæma ákvarðanatöku með annarri slæmri ákvörðun.

Meirihluti í Borgarstjórn vísaði í gær frá tillögu sjálfstæðismanna um að Orkuveitu Reykjavíkur yrði gert að fylla upp í Árbæjarlón. Lónið var tæmt af frumkvæði Orkuveitunnar haustið 2020 en tæmingin fljótt kærðir af íbúum.

Úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála úrskurðaði svo í haust að tæming lónsins hafi verið ólögmæt. Nú vilja einhverjir íbúar í Árbæ að fyllt verði aftur í lónið, sem var skapað fyrir tæpum 100 árum.

„Við erum nýbúin að sjá úrskurðinn og skipulagsfulltrúi er búinn að biðja um viðbrögð frá Orkuveitunni hvernig þau ætla að bregðast við þessari stöðu. Mér finnst eðlilegt að sjá hver þau viðbrögð verða áður en við förum að rjúka upp til handa og fóta,“ segir Alexandra Briem, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar.

Hefði átt að stöðva tæminguna

Orkuveita Reykjavíkur hefði átt að sækja um framkvæmdaleyfi og borgin átt að stöðva framkvæmdina. Á sínum tíma hafi verið skiptar skoðanir hvort framkvæmdarleyfi þyrfti.

„Við vorum með álit frá skipulagsstofnun að þetta væri ekki framkvæmdaleyfisskylt og borgarlögmaður var á þeirri skoðun að þetta væri ekki framkvæmdarleyfisskylt.“

Úrskurðarnefnd hafi hins vegar ekki tekið afstöðu til þess hvort fylla ætti aftur upp í lónið

„Það er meira að segja skýrt að nefndin hefði aldrei getað ákveðið það, hún hefur ekki það umboð,“ segir Alexandra.

Lífríki hafi dafnað

Í kjölfar tæmingarinnar hafi lífríki við árnar dafnað vel þó það hafi breyst. Til að mynda hefur laxa og urriðastofn Elliðaáa dafnað mjög. Það sé staðreynd, sama hvernig ákvörðunin um tæminguna var tekin.

„Við lögum ekki slæma ákvarðanatöku með annarri slæmri ákvarðanatöku. Núna er staðan eins og hún er, þetta er orðinn hlutur og við verðum bara að ákveða hvernig við ætlum að hafa þetta til framtíðar.“


Tengdar fréttir

Segir meiri­hlutann í af­neitun um „ó­leyfis­fram­kvæmd“

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sakar meirihlutann í borgarstjórn Reykjavíkur um að vera í afneitun um það sem hann kallar óleyfisframkvæmd að tæma Árbæjarlón. Meirihluti borgarstjórnar vísaði frá tillögu um að fylla lónið aftur.

Til­laga um náttúru­spjöll í boði Sjálf­stæðis­flokksins

Elliðaárnar hafa stundum verið kallaðar Perla Reykjavíkur enda einstakt að laxaveiðiá renni um höfuðborg. Þar sem raforkuvinnslunni hefur verið hætt eru markvissar aðgerðir til að endurheimta fyrra lífríki í ánum þegar farnar að skila sér.

Úr­skurður um tæmingu Ár­bæjar­lóns fall­ein­kunn fyrir borgina

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir nýjan úrskurð úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um tæmingu Árbæjarlóns vera falleinkunn fyrir borgina og Orkuveitu Reykjavíkur. Það sé til háborinnar skammar að borgin hafi ekki stöðvað tæminguna á sínum tíma. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×