Prison Break stjarna nýr stjúpfaðir Miley Cyrus Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 29. nóvember 2022 11:31 Tish Cyrus og Dominic Purcell eru nýjasta parið í Hollywood. Getty/Kevin Mazur-Stephane Cardinale Tish Cyrus, móðir tónlistarkonunnar Miley Cyrus, er komin í nýtt samband. Sá heppni er Prison Break leikarinn Dominic Purcell.
Foreldrar Miley Cyrus, þau Tish og Billy Ray, skildu í apríl á þessu ári eftir tuttugu og átta ára hjónaband. Þau höfðu sótt um skilnað tvisvar áður og ekki búið undir sama þaki í tvö ár. View this post on Instagram A post shared by Tish Cyrus (@tishcyrus) Þakkar tímasetningu guðs Nú hefur Tish hins vegar fundið ástina á ný í örmum leikarans Dominic Purcell. Parið opinberaði samband sitt með myndbirtingu á Instagram fyrir stuttu. Á myndinni mátti sjá parið í faðmlögum. Stuttu seinna setti Tish inn textann: „Þegar kemur að tímasetningu guðs, mun allt vera í lagi“. Þá bætti hún því við að stundum hefði sér þótt erfitt að trúa þessari fullyrðingu en þetta væri svo sannarlega satt. Tish Cyrus deildi þessum texta með fylgjendum sínum á Instagram stuttu eftir að hún setti inn mynd af sér og nýja kærastanum.instagram Bæði komin í ný sambönd Tish virðist því vera alsæl með nýja kærastann. Tish er 55 ára gömul og Dominic þremur árum yngri. Hann sló í gegn í þáttunum Prison Break, The Flash og Legends of Tomorrow. Þá fór hann með hlutverk Dracula í kvikmyndinni Blade: Trinity. Eins og fram hefur komið á Vísi er Billy Ray einnig kominn í nýtt samband. Hann er trúlofaður ungu söngkonunni Firerose. Samband þeirra hefur vakið mikla athygli sökum aldursmunar á parinu. Billy Ray er sextíu og eins árs gamall. Nákvæmur aldur Firerose er ókunnur en hún er talin vera á þrítugsaldri. View this post on Instagram A post shared by Billy Ray Cyrus (@billyraycyrus)
Ástin og lífið Hollywood Tengdar fréttir Hamingjuóskum rignir yfir pabba Miley Cyrus Kántrýstjarnan Billy Ray Cyrus virðist vera tilbúinn að festa ráð sitt með ungu söngkonunni Firerose, ef marka má nýja mynd sem parið birti á Instagram í gær. 19. október 2022 15:01 Faðir Miley Cyrus hefur fundið ástina á ný Söngvarinn Billy Ray Cyrus, faðir Miley Cyrus, er kominn með kærustu. Kærastan er ástralska söngkonan Firerose. Það var í apríl á þessu ári sem fyrrverandi eiginkona hans til tuttugu og átta ára, Tish Cyrus, sótti um skilnað. 3. október 2022 18:30 Billy Ray og Tish Cyrus sækja um skilnað í þriðja skiptið Foreldrar Miley Cyrus þau Billy Ray og Tish hafa sótt um skilnað eftir tuttugu og átta ára hjónaband. Hjónin hafa tvisvar sinnum áður sótt um skilnað en ákveðið í framhaldinu að halda sambandinu áfram og gerðist það síðast árið 2013. 11. apríl 2022 21:30 Mest lesið Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Lífið Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Lífið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Lífið Þingmaður selur húsið Lífið Bestu myndir Robs Reiner Bíó og sjónvarp Enginn Óskar til Íslands 2026 Bíó og sjónvarp Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Lífið Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Menning Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Lífið Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Menning Fleiri fréttir Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Þingmaður selur húsið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Skrifaði eftirréttasöguna: „Er hann geðbilaður?“ Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Katie Melua með tónleika í Hörpu í júní Segir síðasta ár hafa verið strembið Snjókorn falla eins og þú hefur aldrei heyrt það Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Draumadís Þórhildar og Hjalta skírð Ískaldir IceGuys jólatónleikar Bríet ældi á miðjum tónleikum Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Sjá meira
Hamingjuóskum rignir yfir pabba Miley Cyrus Kántrýstjarnan Billy Ray Cyrus virðist vera tilbúinn að festa ráð sitt með ungu söngkonunni Firerose, ef marka má nýja mynd sem parið birti á Instagram í gær. 19. október 2022 15:01
Faðir Miley Cyrus hefur fundið ástina á ný Söngvarinn Billy Ray Cyrus, faðir Miley Cyrus, er kominn með kærustu. Kærastan er ástralska söngkonan Firerose. Það var í apríl á þessu ári sem fyrrverandi eiginkona hans til tuttugu og átta ára, Tish Cyrus, sótti um skilnað. 3. október 2022 18:30
Billy Ray og Tish Cyrus sækja um skilnað í þriðja skiptið Foreldrar Miley Cyrus þau Billy Ray og Tish hafa sótt um skilnað eftir tuttugu og átta ára hjónaband. Hjónin hafa tvisvar sinnum áður sótt um skilnað en ákveðið í framhaldinu að halda sambandinu áfram og gerðist það síðast árið 2013. 11. apríl 2022 21:30