„Jólin hafa ekki alltaf verið auðveld“ Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 14. desember 2022 09:00 Gústi B er viðmælandi í Jólamola dagsins. Vísir/Helgi Ómars Útvarpsmaðurinn og samfélagsmiðlastjarnan Ágúst Beinteinn Árnason, betur þekktur sem Gústi B, elskar jólin en er ekki of upptekinn af hefðum. Hann heldur þó mikið upp á möndlugrautinn og er hann tilbúinn að beita brögðum til þess að næla sér í möndluna. Gústi er viðmælandi í Jólamola dagsins.
Jólamolar Vísis munu birtast reglulega fram að jólum. Þar fáum við að kynnast þjóðþekktum einstaklingum í nýju ljósi og komast að því hvað það er sem kemur þeim í jólagírinn. Jólamolunum er ekki síður ætlað að koma lesendum Vísis í hið eina sanna hátíðarskap. Hvort myndirðu skilgreina þig sem Elf eða The Grinch? „Ég er Elf , allan daginn. Jólin eru skemmtilegasti tíminn! Mér finnst reyndar vanta allan snjó í ár. Getur ekki einhver græjað það?“ Hver er þín uppáhalds jólaminning? „Uppáhalds jólaminningin hlýtur að vera þegar við fjölskyldan ákváðum að sleppa sparifötunum og vera bara á náttfötunum. Það var fyrir tíu árum og síðan þá höfum við alltaf verið á náttfötunum á aðfangadag. Sumum vinum mínum finnst það einkennilegt en mér finnst það þægilegt. Maður nýtur sínum mun betur í þægilegum fötum.“ Hver er eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? „Myndavél sem ég fékk frá bróður mínum, Árna Beinteini, árið 2012. Hún kom sér heldur betur vel og ég hef ábyggilega búið til yfir þúsund stuttmyndir með henni. Ég á hana enn þann dag í dag en nú er hún meiri safngripur.“ View this post on Instagram A post shared by Gusti B (@gustib_1) Hver er versta jólagjöf sem þú hefur fengið? „Ég fékk einu sinni útrunnar hnetur í poka frá vini mínum. Þetta er ekki einu sinni grín. Það var mjög spes. Ég þakkaði honum samt kærlega fyrir - enda hugurinn sem skiptir máli. Maður á að vera þakklátur á jólunum, enginn tími fyrir vesen.“ Hver er uppáhalds jólahefðin þín? „Á eftir því að vera alltaf í náttfötum á jólunum hlýtur uppáhalds jólahefðin mín að vera möndlugrauturinn, hundrað prósent! Ég fæ líka eiginlega alltaf möndluna og ef ekki þá svindla ég og bæti við möndlu í minn graut. Það er klassískt. Við endum jólagrautinn á leik af blikkmorðingja og þá er sá sem fékk möndluna morðinginn og á að reyna drepa hina.“ Hvert er þitt uppáhalds jólalag? „Cashmere draumur með Herra Hnetusmjör og Birgittu Haukdal er uppáhalds lagið mitt í augnablikinu. Það er galið gott. Idol dómararnir kunna þetta.“ Hver er þín uppáhalds jólamynd? „Christmas Vacation. Þar klúðrast einhvern veginn allt, svolítið eins og í raunveruleikanum. Jólin hafa ekki alltaf verið auðveld en þá er mikilvægt að vera jákvæður og líta á björtu hliðarnar. Vera þakklátur fyrir þau jól sem hafa gengið vel og áfallalaust fyrir sig.“ Hvað borðar þú á aðfangadag? „Við bræður fáum okkur yfirleitt bara eitthvað af handahófi. Einu sinni borðuðum við til dæmis Fabrikkuborgara á jólunum. Við erum alls ekki of uppteknir af hefðum.“ Fjölskylda Gústa ákvað eitt sinn að vera í náttfötunum á aðfangadagskvöld og hafa þau haldið í þá hefð alveg síðan. Hvers óskar þú þér í jólagjöf í ár? „Mig sárvantar Gucci armband, svo það er efst á listanum. En ég sætti mig líka við sokkapar eða bara hvað sem er. Annars finnst mér betra að gefa en þiggja.“ Hvað er það sem hringir inn jólin fyrir þér? „Það sem hringir inn jólin fyrir mér er þegar við bræður tökum lagið saman á píanóinu og fjölskyldan dansar í kringum tréð heima hjá okkur. Við eigum líka geggjaða jólasveinabúninga sem við hendum okkur stundum í. Það vekur mikla lukku. Fjölskyldan er mér mikilvægust á tímum jólanna.“ Bræðurnir Gústi B og Árni Beinteinn spila saman á píanóið hver einustu jól.
Jólamolar Jólalög Jólamatur Samfélagsmiðlar FM957 TikTok Jól Tengdar fréttir Mátti skjóta refinn í hausinn en ekki eiga hann sem gæludýr „Ég hugsaði strax, ég þarf skemmtilegt gæludýr. Ég hugsaði fyrst um apa en þegar ég las mér til um málið þá komst ég að því að öpum líður ekkert sérstaklega vel á Íslandi. Þeir vilja vera í heitum löndum þannig að ég ákvað að smygla ekki apa til landsins,“ segir TikTok stjarnan og útvarpsmaðurinn Ágúst Beinteinn Árnason, betur þekktur sem Gústi B. 28. apríl 2022 12:03 Míkrófónninn eftirminnilegasta jólagjöfin: „Ég ætlaði alltaf að verða söng- og leikkona“ Athafnakonan Lína Birgitta Sigurðardóttir elskar að gefa jólagjafir. Sjálf veit hún ekki hvað hana langar í, þar sem hana skortir ekkert. Hún segir þó að gjafabréf upp í flug myndi alltaf nýtast henni vel þar sem hún ferðast mikið. Lína Birgitta er viðmælandi í Jólamola dagsins. 13. desember 2022 09:01 „Ég vil alltaf meira skraut, fleiri ljós, fleiri gjafir, meira stuð“ Rithöfundurinn og leikarinn Gunnar Helgason hefur kætt íslensk börn í rúmlega tuttugu og fimm ár. Hann er hvergi nær hættur, því þessa dagana eru hann og Felix með jólasýningu í Gaflaraleikhúsinu. Auk þess hefur Gunnar gefið út hverja metnaðarfullu barnabókina á fætur annarri og nefnist nýjasta bók hans Bannað að ljúga. Gunni er viðmælandi í Jólamola dagsins. 12. desember 2022 09:00 Óhefðbundin jól í Chile: „Vorum þvílíkt klár í jólin en þau ætluðu aldrei að byrja“ Tónlistarkonan og fasteignasalinn Hera Björk Þórhallsdóttir segist vera jólaálfur allt árið um kring. Hún er þó ekki sérstaklega formföst þegar kemur að jólunum. Hún borðar til að mynda ekki alltaf sama matinn á aðfangadag og hefur eytt jólunum bæði á Kanaríeyjum og í Chile. Hún segir samveruna með fjölskyldunni vera það eina sem skiptir máli. Hera Björk er viðmælandi í Jólamola dagsins. 11. desember 2022 09:00 „Eitthvað heillandi við jólaandann í bland við kuldann og stressið“ Rithöfundurinn og hlaðvarpsstjórnandinn Beggi Ólafs er búsettur í Kaliforníu þar sem hann stundar doktorsnám í sálfræði. Hann ætlar þó að koma heim til Íslands nú í desember og njóta jólanna í faðmi fjölskyldu og vina. Beggi Ólafs er viðmælandi í Jólamola dagsins. 10. desember 2022 09:00 Mest lesið Sannkölluð áramótabomba Jól Hugmyndir að hátíðargreiðslum fyrir börn Jól Heitustu jólagjafir ársins fyrir hana Jól Byggði Eiffelturninn úr piparkökum og ætlar sér meira Jól Fær ekki að vera hin eina sanna „drottning jólanna“ þrátt fyrir allt Jól Jóladagatal Vísis: Benedikt Erlingsson gerir Sigurjóni erfitt fyrir í Tvímælalaust Jól Jóladagatal Vísis: Bríet léttir lundina með prumpulyktarlagi Jól Segir engin jól án sörubaksturs Jól Jólalag dagsins: Jóhanna Guðrún og Eyþór Ingi flytja Hjartað lyftir mér hærra Jól Gaf foreldrum sínum hræðilega jólagjöf sem var fljótt látin hverfa Jól
Mátti skjóta refinn í hausinn en ekki eiga hann sem gæludýr „Ég hugsaði strax, ég þarf skemmtilegt gæludýr. Ég hugsaði fyrst um apa en þegar ég las mér til um málið þá komst ég að því að öpum líður ekkert sérstaklega vel á Íslandi. Þeir vilja vera í heitum löndum þannig að ég ákvað að smygla ekki apa til landsins,“ segir TikTok stjarnan og útvarpsmaðurinn Ágúst Beinteinn Árnason, betur þekktur sem Gústi B. 28. apríl 2022 12:03
Míkrófónninn eftirminnilegasta jólagjöfin: „Ég ætlaði alltaf að verða söng- og leikkona“ Athafnakonan Lína Birgitta Sigurðardóttir elskar að gefa jólagjafir. Sjálf veit hún ekki hvað hana langar í, þar sem hana skortir ekkert. Hún segir þó að gjafabréf upp í flug myndi alltaf nýtast henni vel þar sem hún ferðast mikið. Lína Birgitta er viðmælandi í Jólamola dagsins. 13. desember 2022 09:01
„Ég vil alltaf meira skraut, fleiri ljós, fleiri gjafir, meira stuð“ Rithöfundurinn og leikarinn Gunnar Helgason hefur kætt íslensk börn í rúmlega tuttugu og fimm ár. Hann er hvergi nær hættur, því þessa dagana eru hann og Felix með jólasýningu í Gaflaraleikhúsinu. Auk þess hefur Gunnar gefið út hverja metnaðarfullu barnabókina á fætur annarri og nefnist nýjasta bók hans Bannað að ljúga. Gunni er viðmælandi í Jólamola dagsins. 12. desember 2022 09:00
Óhefðbundin jól í Chile: „Vorum þvílíkt klár í jólin en þau ætluðu aldrei að byrja“ Tónlistarkonan og fasteignasalinn Hera Björk Þórhallsdóttir segist vera jólaálfur allt árið um kring. Hún er þó ekki sérstaklega formföst þegar kemur að jólunum. Hún borðar til að mynda ekki alltaf sama matinn á aðfangadag og hefur eytt jólunum bæði á Kanaríeyjum og í Chile. Hún segir samveruna með fjölskyldunni vera það eina sem skiptir máli. Hera Björk er viðmælandi í Jólamola dagsins. 11. desember 2022 09:00
„Eitthvað heillandi við jólaandann í bland við kuldann og stressið“ Rithöfundurinn og hlaðvarpsstjórnandinn Beggi Ólafs er búsettur í Kaliforníu þar sem hann stundar doktorsnám í sálfræði. Hann ætlar þó að koma heim til Íslands nú í desember og njóta jólanna í faðmi fjölskyldu og vina. Beggi Ólafs er viðmælandi í Jólamola dagsins. 10. desember 2022 09:00