Innlent

HS Orka eykur fram­leiðslu­getu á Reykja­nesi

Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar
HS Orka hefur rekið orkuverk í Svartsengi rétt hjá Bláa lóninu.
HS Orka hefur rekið orkuverk í Svartsengi rétt hjá Bláa lóninu. Mynd/HS Orka

HS Orka hefur hafið vinnu við stækkun orkuversins í Svartsengi. Í orkuverinu verður ein framleiðslueining sem mun koma í stað nokkurra eldri véla og búnaðar. Með að nýta gufu sem áður fór í eldri vélar eykst framleiðslugetan og viðhalds- og framleiðslukostnaður lækkar. Þá er gert ráð fyrir því að með stækkuninni verði hægt að ná betri nýtingu úr auðlindinni í Svartsengi í framtíðinni.

Í fréttatilkynningu kemur fram að öll tilskilin leyfi hafi fengist fyrir stækkuninni. Eftir stækkun mun framleiðslugeta orkuversins í Svartsengi verða 85 MW.

Kom það í hlut Alberts Albertssonar að taka fyrstu skóflustunguna ásamt verktökunum. Albert er hugmyndasmiður Auðlindagarðsins sem hefur það markmið að draga úr sóun og fullnýta allt það sem fellur til við jarðhitavinnslu fyrirtækisins.

Þá hefur Albert komið að uppbyggingu allra hluta virkjunarinnar í Svartsengi. Framleiðsluaukningin í Svartsengi er fengin með betri nýtingu á núverandi upptekt úr jarðhitageyminum og því við hæfi að Albert tæki fyrstu skóflustunguna.

Fjármögnun tryggð

HS Orka hefur tryggt 61,9 milljón dollara fjármögnun frá núverandi lánveitendum til verkefnisins. Þá munu hluthafar HS Orku leggja til viðbótarfjármögnun til að styðja við stækkunina.

Þá kemur fram í tilkynningunni að fjármögnun verkefnisins undirstriki það traust sem bæði lánastofnanir og hluthafar hafa á fyrirtækinu og þau verkefni sem það vinnur að til að auka framboð raforku á Íslandi til að mæta þörfum markaðarins.

„Við erum mjög spennt fyrir því að hefja stækkun á virkjuninni í Svartsengi í beinum framhaldi af því að klára stækkun virkjunarinnar á Reykjanesi. Bæði verkefnin ná vel utan um markmið HS Orku um að nýta sem best þær auðlindir sem okkur er treyst fyrir þar sem við erum að auka raforkuframleiðslu inn á raforkukerfið án þess að fara inn á ný svæði, sem dregur úr áhættu og kostnaði,“ segir Tómas Sigurðsson forstjóri HS Orku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×