Innlent

Skipaður lög­reglu­stjóri á Vest­fjörðum

Atli Ísleifsson skrifar
Helgi Jensson.
Helgi Jensson. Stjr

Dómsmálaráðherra hefur skipað Helga Jensson, aðstoðarsaksóknara og staðgengill lögreglustjórans á Austurlandi, í embætti lögreglustjóra á Vestfjörðum frá og með 1. janúar 2023.

Á vef dómsmálaráðuneytisins kemur fram að Helgi hafi lokið meistaraprófi í lögfræði frá Lagadeild Háskóla Íslands árið 1989 og hlotið málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 1996. 

„Hann lauk MLM gráðu í forystu og stjórnun árið 2018 og hefur auk þess sótt sér ýmiskonar viðbótarmenntun bæði við endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands og Lögregluskóla ríkisins.

Á árunum 1989-2006 starfaði Helgi hjá bæjarfógetanum á Seyðisfirði og sýslumanninum á Seyðisfirði við störf löglærðs fulltrúa, þ.m.t. dómstörf sem þá voru á hendi sýslumanna, utan áranna 1998-1999 þegar hann starfaði við eigin lögmannsstofu og fasteignasölu. Frá árinu 1992 gegndi Helgi stöðu staðgengils sýslumanns á Seyðisfirði. Árið 2006 færði Helgi sig yfir til embættis sýslumanns á Eskifirði þar sem hann gegndi stöðu fulltrúa og staðgengils sýslumanns fram til ársins 2014 og starfaði þar m.a. við lögreglustjórn, stjórnun rannsókna lögreglumála og saksókn auk hefðbundinna verkefna er undir sýslumann heyra.

Frá árinu 2015 hefur Helgi gegnt stöðu aðstoðarsaksóknara og staðgengils lögreglustjórans á Austurlandi auk þess að hafa verið tímabundið settur sýslumaður í nokkur skipti sem og settur héraðsdómari á Austurlandi,“ segir í tilkynningunni.

Sex sóttu um embættið, en skipað er í embættið til fimm ára. Sérstakri hæfnisnefnd var falið að fara yfir umsóknirnar og skilaði nefndin ráðherra rökstuddu áliti á hæfni umsækjenda.

Karl Ingi Vilbergsson lét af störfum sem lögreglustjóri á Vestfjörðum í ágúst síðastliðnum. Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra, hefur verið settur lögreglustjóri á Vestfjörðum síðari hluta árs og gegnt stöðunum tveimur samhliða.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×