Aldrei fleiri bílar á hringveginum en á síðasta ári Atli Ísleifsson skrifar 3. janúar 2023 14:32 Umferðin í heild árið 2022 reyndist 3,6 prósent meiri en umferðin árið 2021. Vísir/Vilhelm Aldrei áður hefur meiri umferð mælst á hringveginum en árið 2022 og var þá met ársins 2019 slegið. Umferðin í fyrra reyndist einu og hálfu prósenti meiri en árið 2019. Mun minna var ekið í desember 2022 en árið áður og helgast líklega af veðuraðstæðum.
Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar þar sem farið er yfir tölur þegar kemur að umferðinni á Hringveginum á síðasta ári. „Ekki alveg óvænt, reyndist umferð í nýliðnum desember tæplega 3% minni en í sama mánuði árið 2021, svo ekki var slegið met í umferðinni þennan mánuðinn. Má trúlega rekja þennan samdrátt að mestu til slæmrar færðar. Samdráttur varð á öllum landsvæðum utan Vesturlands en þar jókst umferðin um 2,8%, miðað við sama mánuð 2021. Mest dróst umferð saman um Austurland eða um 7,5%. Af einstaka talningarstöðum reyndist mesti samdrátturinn vera um Geitháls, í nágrenni höfuðborgarsvæðis, eða tæplega 10% samdráttur en mest jókst umferð við Hafnarfjall eða um 15%. Það er eftirtektarvert að sjá svo miklar sveiflur í umferð í kringum höfuðborgarsvæðið þar sem alla jafna ríkir meiri stöðugleiki en lengra úti á landi. Uppgjör, lykilteljara á Hringvegi, fyrir árið 2022 Fyrir árið 2022 í heild var mest ekið á Hringveginum á föstudögum en minnst á laugardögum. 16% af heildarumferð meðalvikunnar fór fram á föstudögum en 13% á laugardögum. Umferð á miðvikudögum reyndist næst meðalumferð yfir vikuna. Niðurstaða þessa árs er óhefðbundin þar sem sem fyrri rannsóknir Vegagerðarinnar hafa sýnt að fimmtudagar hafa reynst næst meðaltali (utan þéttbýlis) og umferð á þriðjudögum hefur gjarnan verið minnst. Það verður forvitnilegt að fylgjast með þessari þróun, hvort einkenni umferðar (sem er afar stöðug stærð) séu varanlega að breytast og hverjar séu ástæður eða hvort um sé að ræða tilfallandi tilvik vegna óvenjulegs árs. Umferðin, í heild, árið 2022 reyndist 3,6% meiri en umferðin um sömu mælisnið árið 2021. Þetta er nýtt met, sem reyndist 1,5% stærra en fyrra met er frá árinu 2019,“ segir á vef Vegagerðarinnar.
Umferð Mest lesið Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent