Heiðar Örn Sigurfinnsson tók við sem fréttastjóri RÚV í fyrra og fór yfir sinn feril. Heiðar lýsir sjálfum sér sem litlum bókaormi úr Garðabæ en þegar að hann ætlaði að æfa sig fyrir fréttastjóra atvinnuviðtalið vildi ekki betur til en að rauð viðvörun skall á og því fór sú æfing fyrir bí.
Lóa Bára Magnúsdóttir markaðsstjóri Origo er ein þeirra sem bjó og starfaði lengi erlendis. Lóa bjó í Noregi í ellefu ár og starfaði þá meðal annars hjá stórum og þekktum norskum neytendavörufyrirtækjum.
Kristján Jóhannesson rekstrarstjóri Gæðabaksturs starfaði áður í bankageiranum og síðan hjá Icelandair en þegar viðtalið var tekið var hann á fullu að koma sér inn í nýtt starf, sinna heimili og börnum, klára meistaragráðuna sína og að sinna íþróttatengdri stjórnarsetu og þjálfun.
Guðrún Ragna Garðarsdóttir tók við forstjórastarfi Atlantsolíu rétt fyrir bankahrun og þá aðeins 32 ára gömul. Félagið veltir um sjö milljörðum á ári og segir Guðrún það oft hafa kallað á alls kyns púsluspil að byggja upp framúrskarandi fyrirtæki samhliða því að vera með ung börn og heimili og bæta við sig námi. Þá eru þau hjónin einnig með hús á Seyðisfirði og reyna að vera þar sem mest í fríum.
Í Atvinnulífinu í fyrra heyrðum við líka í fólki sem hefur flust til Íslands og byggt upp spennandi starfsframa hér. Sem dæmi má nefna Charlotte Biering sem starfar sem Global Diversity and Inclusion Specialist hjá Marel og hagfræðinginn Bala Kamallakharan sem stofnaði og hefur staðið að baki Startup Iceland. Enda eitt þekktasta nafnið í heimi nýsköpunar á Íslandi.
Við töluðum líka við margt fólk sem hefur ákveðið að flytjast til útlanda og byggja upp starfsframann sinn þar. Danmörk er ofarlega á blaði og þar eru það ekki síst ungar konur sem eru að láta til sín taka í atvinnulífinu.
Þá töluðum við fjöldann allan af fólki sem hefur farið óvenjulegar leiðir í lífi og starfi. Flutt til útlanda og starfað við óvenjulegar aðstæður eða á óvenjulegum stöðum. Horft á þætti Lóu Pindar um Hvar er best að búa og flutt sjálft sig og fyrirtækið sitt til útlanda, skipt um starfsvettvang eða starfa fyrir íslensk fyrirtæki, en með búsetu erlendis.
Fleiri viðtöl og umfjallanir um starfsframann og ýmislegt honum tengdum, má sjá hér.