Álaborg öruggt í umspil eftir sigur á Elverum Smári Jökull Jónsson skrifar 22. febrúar 2023 19:22 Aron Pálmarsson og félagar hans unnu sigur á Elverum í kvöld. Vísir/Getty Aron Pálmarsson og félagar hans í danska liðinu Álaborg unnu sigur á liði Orra Freys Þorkelssonar Elverum í Meistaradeildinni í handbolta í kvöld. Álaborg er nú öruggt um sæti í umspili keppninnar.
Fyrir leikinn í kvöld var ljóst að Álaborg væri öruggt með sæti í umspili Meistaradeildarinnar með sigri en liðið sat í sjötta sæti B-riðils með níu stig, þremur stigum á undan Celje Lasko. Tvö efstu lið í hvorum riðli fara beint áfram í átta liða úrslit keppninnar en liðin í 3.-6.sæti leika umspilsleiki um hin fjögur sætin í 8-liða úrslitum. Elverum, sem var í neðsta sæti B-riðils fyrir leikinn í kvöld, byrjaði betur og komst í 3-1 í upphafi leiks sem fór fram í Danmörku. Álaborg náði þó frumkvæðinu fljótlega og komust mest sjö mörkum yfir í fyrri hálfleik en staðan að honum loknum var 17-12 Álaborg í vil. Í seinni hálfleik náði Eleverum mest að minnka muninn niður í fjögur mörk í stöðunni 26-22 og í raun aldrei spurning hvar sigurinn myndi enda. Lokatölur 31-24 Álaborg í vil sem þar með geta ekki endað neðar en í sjötta sæti síns riðils. Aron Pálmarsson skoraði fimm mörk úr átta skotum fyrir Álaborg í kvöld en Orri Freyr Þorkelsson skoraði tvö mörk fyrir Elverum. Ein umferð er eftir af riðlakeppninni en umspilsleikirnir fara fram í lok mars.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Carragher sagði „heiladauðan“ Hannibal hafa kostað Burnley stig Enski boltinn „Ef félagið vill breyta um leikstíl verður það að breyta um mann“ Enski boltinn Keane tók Shaw á teppið: „Gafst upp og alltaf meiddur“ Enski boltinn Sjáðu City salta United og ískaldan Salah á vítapunktinum Enski boltinn Sjáðu mörkin úr mettapi KR Íslenski boltinn „Ég verð að horfa í spegilinn eftir svona frammistöðu“ Íslenski boltinn Þurftu að aflýsa síðasta leggnum vegna mótmæla Sport Beit andstæðing á HM Sport Leik hætt eftir að leikmaður hné niður Fótbolti Vann maraþonið með 0,003 sekúndna mun Sport Fleiri fréttir Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Haukar sóttu tvö stig norður Sneypuför Stjörnumanna til Eyja Viggó magnaður í dramatísku jafntefli Staðan grafalvarleg og HSÍ leitar nýrra leiða Uppgjör: Valur - FH 27-32 | Jón Þórarinn skellti í lás þegar FH sótti tvö stig á Hlíðarenda ÍR komið á blað þökk sé ótrúlegri frammistöðu Baldurs Fritz Fimm íslensk mörk í stórtapi Kolstad Janus Daði komst ekki á blað í naumu tapi Bognir en hvergi bangnir: „Ekki alltaf sólskin og sleikjóar“ Ómar Ingi fór áfram hamförum Engin vandamál hjá Arnari Birki og félögum Óðinn markahæstur á vellinum Rétthentu landsliðshornamennirnir í stuði Gamla merkið verður áfram á landsliðsbúningunum Birna Berg snýr aftur í landsliðið og tveir nýliðar Reif gjallarhornið úr höndum stuðningsmanns eftir fúkyrðaflaum Donni og félagar örugglega áfram í Evrópudeildinni Nýliðar KA/Þórs byrja með sigri Langþráð hjá Melsungen Viggó markahæstur í eins marks tapi KA lagði nýliðana á Selfossi Stórleikur Söndru tryggði ÍBV sigur Sjá meira