- Meyjan er frá 23. ágúst til 22. september.
Þú virðist líka skynja betur þá sem eru látnir eða farnir frá þér. Þér finnst eins og þeir séu að verða einhvers konar partur af þér. Jörðin, útivist, hafið og súrefnið gefur þér líka nýja tegund af líðan. Ef þú ert með einhvers konar veikindi eða krankleika, þá skaltu sjálf skoða hvernig þú kemst út úr því, vegna þess að þú hefur líklega ekki fengið nógu góðar ráðleggingar eða hjálp.
Það eru ótrúlegustu hlutir og upplýsingar sem fólk kemur með til þín og þú skalt gæta þín vel á því að segja engum það sem þér er treyst fyrir og alls ekki vera boðberi illra tíðinda. Þú átt að tengja þig við ókunnugt fólk og tengja saman fólk sem þú heldur að samskipti á milli munu ganga. Þetta er eitthvað sem þú hefur oft gert án þess að vita það, en núna verðurðu eins og í vinnu við þetta.
Allt sem þú gerir sem tengist því að vera einhvers konar sjálfboðaliði eða bara að hjálpa einhverjum færðu margfalt borgað tilbaka innan skamms tíma. Þú vilt að jafnvægi ríki í ástinni og sækist eftir trúfestu, en láttu afbrýðissemi ekki ná tökum á þér því þú ert sjálf meistari í því að daðra án þess að meina nokkuð með því.
Ef þér finnst eitthvað vera að bíta þig og að þú sért kvíðin, þá er það bara veröldin, ríkisstjórnir þar eða hér, eitthvað sem skiptir engu máli. Því allt er að breytast og ástríða þín verður þess valdandi að allt verður fallegra.
Knús og kossar, Sigga Kling
