Perla Ruth var verðandi liðsfélögum sínum erfið í sigri Framara Smári Jökull Jónsson skrifar 11. mars 2023 18:01 Perla Ruth Albertsdóttir var öflug í dag. Vísir/Hulda Margrét Framarar unnu góðan útisigur á Selfossi í Olís-deild kvenna í handknattleik í dag. Fram minnkar því forskot Stjörnunnar sem situr í þriðja sæti en Fram er í því fjórða.
Leikurinn í dag fór fram á Selfossi en fyrir leikinn var Fram í fjórða sæti Olís-deildarinnar en Selfoss í því sjöunda og næst neðsta. Leikurinn var jafn til að byrja með en um miðjan fyrri hálfleik náði Fram góðum kafla og komst mest sex mörkum yfir. Staðan í hálfleik var 17-13 fyrir gestina úr Fram. Selfoss náði að minnka muninn í tvö mörk í upphafi síðari hálfleiks en missti gestina síðan frá sér á nýjan leik. Lokamínúturnar voru ekki sérlega spennandi og Fram fagnaði að lokum fjögurra marka sigri, lokatölur 28-24 fyrir Fram. Perla Ruth Albertsdóttir, fyrrum og verðandi leikmaður Selfoss var öflug hjá Fram í dag. Hún skoraði átta mörk úr tíu skotum og var markahæst hjá gestunum. Sara Kristín Gunnarsdóttir kom næst með sex mörk og þá varði Hafdís Renötudóttir 14 skot í markinu eða tæplega 38% þeirra skota sem hún fékk á sig. Hjá Selfossi var Katla María Magnúsdóttir markahæst með 7 mörk og Cornelia Hermansson varði 14 skot í markinu sem gerir um 34% vörslu. Fram er enn í 4. sæti Olís-deildarnnar en nú fjórum stigum á eftir Stjörnunni sem tapaði fyrir Val í dag. Selfoss situr enn í 7. sæti og á litla möguleika á að ná Haukum í sjötta sætinu og ná þar með í úrslitakeppnina.
Olís-deild kvenna Fram UMF Selfoss Mest lesið Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti „Stundum þarf maður heppni“ Enski boltinn Viktor Bjarki skoraði enn eitt markið Fótbolti Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Enski boltinn „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ Enski boltinn „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Enski boltinn Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Körfubolti Fleiri fréttir Íslendingaliðin unnu öll og skipa sér í þrjú efstu sætin Bjarki Már raðaði inn mörkunum í seinni hálfleik Stelpurnar okkar mættar aftur í Olís deildina Forsetinn mætir ekki á úrslitaleik HM kvenna Leik lokið: Haukar - KA/Þór 35-20 | Þriggja leikja taphrinu lokið með fimmtán marka sigri Gerir miklar kröfur til sjálfs síns: „Það má aldrei slaka á“ Stjarna Guðjóns fer varlega og mun ekki mæta Íslandi á EM Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Langri þrautagöngu Þýskalands lokið Boða uppsagnir hjá Íslendingaliðinu Rúnar snýr aftur í þýsku úrvalsdeildina „Þetta var afleitt, ég segi bara afsakið“ „Má ekki gleyma kónginum á Akureyri“ Haukur í ham gegn sveinum Guðjóns Vals Framarar hefndu loks með stórsigri KA - Afturelding 22-28 | Öruggt hjá gestunum á Akureyri Gísli meiddist en fór aftur inn á völlinn: „Þurfti að tala læknana svolítið til“ Orri með þrjú mörk er Sporting sendi skýr skilaboð Danir úr leik á HM Taphrina HK á enda eftir dramatískar lokasekúndur Tíu íslensk mörk er Magdeburg vann Melsungen Haukar jafna Val að stigum á toppi deildarinnar FH sótti sigur í greipar ÍBV og Valur vann spennutrylli Benedikt með fjögur mörk í öruggum sigri Holland áfram í undanúrslit og mætir Noregi Norska landsliðið flaug áfram í undanúrslit Stórleikur Birgis Steins í sex marka sigri Fjögur mörk Elvars dugðu skammt í þungu tapi Þýska stálið flaug áfram í undanúrslit Sjá meira