Rakel María galdraði fram þessa stórkostlegu förðun á söngkonuna Siggu Ózk á glæsilegu förðunarkvöldi Rakelar og Reykjavík Makeup School nú á dögunum.Elísabet Blöndal
Það var mikið um dýrðir í Sykursalnum í Grósku nú á dögunum þegar förðunarfræðingurinn Rakel María Hjaltadóttir hélt þar förðunarkvöld, eða svokallað masterclass, í samstarfi við Reykjavík Makeup School.
Rakel María hefur á síðustu árum skapað sér stórt nafn í bransanum og er óhætt að segja að hún sé orðin einn af eftirsóttustu förðunarfræðingum landsins. Hún lærði einnig hárgreiðslu og starfaði lengi sem hárgreiðslukona í Borgarleikhúsinu. Í dag stýrir hún förðunardeild Stöðvar 2.
Rakel er ein sú allra færasta þegar kemur að svokallaðri dívuförðun enda hefur hún farðað og greitt mörgum af helstu dívum landsins fyrir hin ýmsu tilefni. Það var því mikil aðsókn á námskeiðið þar sem Rakel uppljóstraði sínum helstu leyndarmálum á bak við hina fullkomnu glamúrförðun og stórt dívuhár.
Það lá beinast við að fá eina alvöru dívu til þess að vera módel fyrir förðunina og fékk Rakel því enga aðra en tónlistarkonuna Siggu Ózk til að sitja fyrir. Sigga tók svo að sjálfsögðu lagið í lok kvöldsins og skemmtu gestir sér konunglega.
Hér fyrir neðan má sjá myndir sem ljósmyndarinn Elísabet Blöndal tók á þessu vel heppnaða kvöldi.
Stjarna kvöldsins, Rakel María.Elísabet BlöndalViðburðurinn fór fram í hinum glæsilega Sykursal í Grósku.Elísabet BlöndalRakel María ásamt eigendum Reykjavík Makeup School, þeim Ingunni Sig og Heiði Ósk.Elísabet BlöndalVigdís, Guðný Björg, Ingunn, Rakel, Heiður og Elva Björk.Elísabet BlöndalRakel byrjaði á því að krulla hárið á Siggu.Elísabet BlöndalÞegar verið er að gera mikla augnförðun finnst Rakel gott að byrja á augunum áður en hún gerir húðina.Elísabet BlöndalBeauty Blender er algjört töfratól þegar kemur að förðun.Elísabet BlöndalRakel er mikill gleðigjafi og nutu gestir þess að hlusta á hana lýsa hverju skrefi.Elísabet BlöndalHin stórglæsilega Heiður Ósk, annar eigandi Reykjavík Makeup School.Elísabet BlöndalIngunn Sig, annar eigandi Reykjavík Makeup School, geislar á meðgöngunni. Hún á von á sínu fyrsta barni.Elísabet BlöndalDökk skygging og glimmer voru í aðalhlutverki í þessari glæsilegu förðun.Elísabet BlöndalMeistaraverkið farið að taka á sig góða mynd.Elísabet BlöndalRakel byrjaði á því að krulla hárið. Svo leyfði hún krullunum að bíða á meðan hún farðaði Siggu. Að förðuninni lokinni kláraði hún svo hárið.Elísabet BlöndalLokaútkoman var sannkallað listaverk!Elísabet BlöndalVá, vá, vá!Elísabet BlöndalStjarna kvöldsins.Elísabet BlöndalSigga Ózk tók svo að sjálfsögðu lagið.Elísabet Blöndal
Hér fyrir neðan má sjá fleiri myndir frá kvöldinu.
Reykjavík Edition hótelið fylltist af fögrum fljóðum á föstudagskvöldið, þegar þar fór fram Masterclass á vegum Reykjavík Makeup School og Lancôme. Þar kenndi förðunarfræðingurinn Heiður Ósk gestum glæsilega hátíðarförðun.