Tilgangur Félags íslenskra teiknara er að gæta hagsmuna teiknara á sviði grafískrar hönnunar, auglýsinga- og myndskreytinga. Hlutverk FÍT verðlaunanna er að veita því viðurkenningu sem skarar fram úr á Íslandi í grafískri hönnun og myndlýsingum.
Innsend verk eru dæmd út frá faglegum forsendum og tilnefningar aðeins veittar ef verk þykir vera framúrskarandi. Sömuleiðis er á valdi dómnefndar að ákveða hvort veittar séu viðurkenningar og hversu mörg verk hljóti tilnefningu í hverjum flokki.
Hér fyrir neðan má sjá lista yfir verðlaunahafa og verkefnin sem þóttu standa upp úr í hverjum flokki.
Stakar myndlýsingar
Silfurverðlaun
- Abbababb! - Atli Sigursveinsson
- Reykjavik Jazz - Arnar Ingi Viðarsson & Arnar Fells Gunnarsson
Gullverðlaun
- Álfheimar 2: Risinn - Atli Sigursveinsson

Myndlýsingar fyrir auglýsingar og herferðir
Silfurverðlaun
- Portable Electric - Þorleifur Gunnar Gíslason
Gullverðlaun
- Meinlaust? - Elías Rúni
Sterk skilaboð herferðar endurspegluð í teikningum og litum. Tjáningarríkar teikningar með sterkri litanotkun, beitt og sker sig úr. Áberandi og virkar bæði vel í prenti og skjá.

Myndlýsingaröð
Silfurverðlaun
- Bjössi - Þorvaldur Sævar Gunnarsson
- Illustrated Relations of Iceland and Finland: 75 years and more - Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir & Lotta Kaarina Nykänen
Gullverðlaun
- Safnahúsið - Ari Hlynur Guðmundsson Yates
Skemmtilega teiknaður og hugmyndaríkur heimur. Margbrotið, hressilegt og nær til markhópsins. Sköpunargleðin skín í gegn, alveg út í minnstu smáatriði.

Veggspjöld
Silfurverðlaun
- Landsbankinn × EM 2022 - Eysteinn Þórðarson
- Godland / Volaða land - Daniel Imsland
Gullverðlaun
- Rusl - Viktor Weisshappel Vilhjálmsson & Sóley Lee Tómasdóttir
Fallegt myndefni parað við forvitnilegt og fallegt letur sem virkar í fyrstu torlæsilegt og fangar augað. Nútímalegt og ferskt. Litaval og formbygging áhugaverð. Dregur fram hið ljóðræna úr hinu hversdagslega.

Bókakápur
Silfurverðlaun
- Álfheimar 2: Risinn - Atli Sigursveinsson
- JARÐSETNING - Snæfríð Jóhanna Þorsteins & Hildigunnur Gunnarsdóttir
Gullverðlaun
- Svefngríman - Birna Geirfinnsdóttir & Arnar Freyr Guðmundsson
Kápan endurspeglar titil og innihald bókar á skapandi og óvæntan hátt. Ekki er allt gull sem glóir.

Bókahönnun
Silfurverðlaun
- Ævarandi hreyfing / Perpetual Motion - Arnar Freyr Guðmundsson & Birna Geirfinnsdóttir
- Farsótt - Arnar Ingi Viðarsson & Arnar Fells Gunnarsson
Gullverðlaun
- Svefngríman - Birna Geirfinnsdóttir & Arnar Freyr Guðmundsson
Sterk hugmynd, heildræn og næm nálgun. Hugsað fyrir hverju smáatriði.

- JARÐSETNING - Snæfríð Jóhanna Þorsteins & Hildigunnur Gunnarsdóttir
Viðfangsefni bókarinnar birtist mjög skýrt í allri umgjörð og hönnun. Vel hugað að öllum smáatriðum. Maður fær áþreifanlega tilfinningu fyrir viðfangsefninu. Efnis-, letur- og litaval endurspeglar viðfangsefni bókarinnar á mjög skýran hátt.
Upplýsingahönnun
Gullverðlaun
- Umferðin.is - Atli Þór Árnason, Hörður Lárusson & Simon Viðarsson
Fyrst og fremst aðgengilegt og notendavænt. Vel hugað að öllum atriðum og vandlega leyst. Virkni og hönnun haldast vel í hendur.

Umhverfisgrafík
Silfurverðlaun
- Hrekkjavökuhakkarinn - Sigríður Ása Júlíusdóttir, Guðmundur Heiðar Helgason & Emma Theodórsdóttir
Gullverðlaun
- Hafnartorg: Gluggar - Alberto Farreras Muñoz
Falleg og ljóðræn stemmning. Lágstemmd umhverfisgrafík sem býr til útsýni í gluggalausu rými. Snjallur dúalismi skapar réttu stemninguna, á daginn og svo kvöldin. Styrkir rýmið á smekklegan hátt. Fær það til að rísa á daginn og færir það neðansjávar á kvöldin.

Stakar auglýsingar fyrir prentmiðla
Silfurverðlaun
- Iceland Airwaves: Augmented reality - Gunnar Þór Arnarson, Silvía Pérez De Luis & Björn Daníel Svavarsson
Gullverðlaun
- Finndu muninn - Agga Jónsdóttir
Vel leyst í alla staði. Falleg myndbygging, skemmtileg marglaga fyrirsögn og fágað yfirbragð. Hér hefur tekist vel til við að auglýsa vandmeðfarið efni á afar skapandi hátt.

Auglýsingaherferðir
Silfurverðlaun
- Það má ekkert lengur - Rósa Hrund Kristjánsdóttir, Davíð Terrazas, Erla María Árnadóttir & Snædís Malmquist
- Elskaðu þig. FyrirÞig. - Jón Ari Helgason, Dóra Haraldsdóttir, Jón Ingi Einarsson, Alexander Le Sage de Fontenay & Steinar Júlíusson
- Það veltur margt á íslenskum sjávarútvegi - Hrafn Gunnarsson, Jón Ingi Einarsson, Jón Ari Helgason & Steinar Júlíusson
Gullverðlaun
- Finndu muninn - Agga Jónsdóttir, Margrét Ósk Hildur Hallgrímsdóttir & Anton Kaldal Ágústsson
Vel leyst og óhefðbundnir miðlar notaðir. Normalisering á vandmeðfarinni vöru. Virðisaukandi, minnkar fordóma og finnur leið framhjá hindrunum og ritskoðun fjölmiðla.

Umbúðir og pakkningar
Gullverðlaun
- Umbúðir fyrir nýtt kort indó - Jón Páll Halldórsson
Óhefðbundnar og skemmtilegar umbúðir fyrir annars frekar hversdagslegan hlut. Nýstárleg leið til að afhenda vöruna á hressandi hátt.

- Venja - Agga Jónsdóttir
Litríkar og viðeigandi fyrir vöruna en um leið notendavænt. Þjónar vörunni á framúrskarandi hátt. Týpógrafían og grafíkin færir skemmtilegan og litríkan blæ yfir viðfangsefnið. Kraftmikill búningur. Flott stakt og einnig sem heildarlína.

Geisladiskar og plötur
Silfurverðlaun
- While We Wait - Aron Freyr Heimisson
- Models of Duration - Viðar Logi & John McCowen
Gullverðlaun
- Owls - Viktor Weisshappel Vilhjálmsson
Lágstemmt en mjög vandað handverk með djúpt næmi fyrir tónlistinni sjálfri. Hver og ein plata er einstök.

Firmamerki
Silfurverðlaun
- Kramber - Þorgeir K. Blöndal
Gullverðlaun
- Rusl - Viktor Weisshappel Vilhjálmsson & Sóley Lee Tómasdóttir
Frumlegt merki sem kristallar boðskap hátíðarinnar. Lífræn leikgleði sem er vel útfærð. Taumlaust og torlæsilegt sem er um leið styrkur þess. Sækir á jaðarinn en um leið aðgengilegt. Endurspeglar viðfangsefnið.

Menningar- og viðburðamörkun
Silfurverðlaun
- Rusl - Viktor Weisshappel Vilhjálmsson & Sóley Lee Tómasdóttir
Mörkun fyrirtækja
Silfurverðlaun
- Seven Glaciers - Þorleifur Gunnar Gíslason, Arnar Halldórsson & Eva Árnadóttir
- Portable Electric- Þorleifur Gunnar Gíslason, Þorgeir K. Blöndal & Arnar Halldórsson
Hreyfigrafík
Silfurverðlaun
- The One Show - Arnar Ingi Viðarsson & Arnar Fells Gunnarsson
- Straumurinn er í Öskju - Íris Martensdóttir, Máni Sigfússon & Jón Ari Helgason
Gullverðlaun
- Sinfónían springur út - Sigurður Ýmir Kristjánsson, Viktor Weisshappel Vilhjálmsson, Hólmfríður Benediktsdóttir & Guðni Þór Ólafsson
Efni sem virkar fram í tímann og gefur góð fyrirheit um árstíðirnar fjórar. Hreyfingarnar endurspegla viðfangsefnið, sérstaklega með tónlistina undir. Sterk tenging við sinfóníu í litum og allri heildinni. Sterkt verk eftir heimsfaraldurinn, myrkrið hörfar og lífið sprettur fram. Jákvæð hughrif.

Vefsvæði
Silfurverðlaun
- Umferðin.is - Atli Þór Árnason, Hörður Lárusson & Simon Viðarsson
- Abler - Steinar Ingi Farestveit & Tinna Hallsdóttir
Gullverðlaun
- Listasafn Íslands - Steinar Ingi Farestveit & Júlía Runólfs
Frumlegur og líflegur vefur sem leyfir listaverkunum að njóta sín á sama tíma. Snyrtileg útfærsla. Líflegur á minimalískan hátt. Mikill karakter, vandaður og vel útfærður.

Opinn flokkur
Gullverðlaun
- Verðlaunaskjöldur Bestu deildarinnar - Baldur Snorrason, Adrian Rodriguez, Þorleifur Gunnar Gíslason & Hrafn Gunnarsson

Nemendaflokkur
Silfurverðlaun
- Lamina - Bíbí Söring
Gullverðlaun
- At the Heart of the Dear - Sigríður Þóra (Didda) Flygenring
Áhugaverður stíll, einstök karaktereinkenni og grípandi litaval. Frumlegt viðfangsefni sem kallar á meira.
