- Hrúturinn er frá 21. mars til 19. apríl.
Þegar þú hefur lært og skynjað að þú getur svo miklu meira en þú gerir, er skipulag það sem skiptir máli og að forgangsraða tímanum þínum. Þegar þú finnur að persónan sem er nálægt þér dregur úr þér alla orku þá verðurðu að útiloka hana, allavega huglægt séð. Og þá talarðu bara við heilabúið í þér, því þú ert forstjóri þess og biður kraftinn sem umkringir þig að senda þér vernd.
Þú hefur svo mikið aðdráttarafl að flestir vilja leika við þig og þetta líf er til þess gert að þú leikir þér. Þetta er dálítið svipað og „Call of Duty“, nema að þú ert persónan í leiknum. Farðu að læra að stjórna þessari aflmiklu orku. Ég vil einnig segja þér að Hrútsmerkið er tengt höfðinu og þar af leiðandi getur þú stjórnað því sem þú vilt. Hreyfing og agi eru bein skilaboð til þín og ástin blómstrar ef þú ætlar þér það, og ef þú vökvar þá persónu sem þú ætlar þér að hafa í lífinu þínu.
Þér verður boðið að taka þátt í áhugaverðum atburði eða verkefni. Þú skalt hugsa það vandlega hvort þú hafir eða nennir að gefa því tíma. Margar óskir eru að rætast og Veröldin vill gefa þér stóra hluti en þú verður að taka á móti því sem þú færð og taka á móti því.
Knús og kossar, Sigga Kling
